heidan.blogspot.com

31.3.08

Nýtt period

Í dag byrjar nýtt läsperiod í skólanum. Þetta verður væntanlega mun rólegra en það síðasta, sem er mjög gott :o) Ég er áfram í Strukturakustik og í honum er bara verkefni eftir og svo skráði ég mig í einn kúrs, sem ég er reyndar ekki mjög spennt fyrir og í honum er líka bara verkefni. Verð því bara 3x í viku í skólanum.
Ég fór áðan í viðtal hjá Komvux, þar sem ég ætla að fara og læra sænsku. Þetta viðtal var til að finna réttan hóp fyrir mig. Hún sem ég talaði við sagði að ég talaði mjög góða sænsku og líka að ég skrifaði ekki dönsku ;o) Var ss látin skrifa smá texta á sænsku og hún sagði að flestir Íslendingar sem kæmu skrifuðu sænsku með miklum dönskum áhrifum. Ég er alveg laus við það. Hef reyndar haft ágæta þjálfum að skrifa á sænsku, þar sem allt námið mitt hefur verið á sænsku. Mig vantar aðallega slatta orðaforða og málfræði. Hlakka svo til að byrja :o)

25.3.08

Það er svo mikið í gangi núna. Sænskupróf á eftir, steypupróf á fimmtudaginn og 2 verkefni sem ættu eiginlega að vera búin. Svo byrjar næsta önn í næstu viku.

18.3.08

Á meðan út snjóar og krónan heldur áfram að lækka er ég bara heima að gera verkefni. Það gengur alveg rosaleg hægt með þetta.

17.3.08

Já sæll...

Eigum við eitthvað að ræða íslensku krónuna? Í dag kostar sænska krónan 12.5 krónur(miðað við 8.5 þegar við fluttum út!).
Þar sem Júlli fær laun í íslenkum krónum hefur þetta rosaleg áhrif á fjármálin okkar! .. og ég ætlaði að fara í Ikea á morgun og eyða smá! ;o)
Annars er nú ekki mikið að frétta, það snjóar í dag og í gær var fólk úti á stuttermabol. Ætli þetta sé ekki páskahretið og svo kemur bara sumar. Þórdís er komin í páskafrí og ég er að hamast við að klára verkefni svo ég geti líka farið að mála páskaegg án samviskubits. Næstu helgi förum við svo upp í Småland í sumarbústað. Krakkarnir eiga páskaegg hérna uppi í skáp og tala um þau á hverjum degi. Það verður sko veisla á sunnudaginn :o)
Júlli er að spá í að fara á Hróarskeldu í ár með vinum hérna í Lundi og þá fæ ég kannski að fara í húsmæðraorlof til Íslands í vor í staðinn, þarf reyndar aðeins að vinna fyrir því, því það þarf að taka til í bílskúrnum okkar og kjallaranum á Íslandi út af raka. En það verður nú bara hresssandi. Þá get ég amk fengið að knúsa nokkra fjölskyldumeðlimi og vini :oD

11.3.08

Kominn mars og loksins blogg!

Vá það er nú orðin frekar langt síðan ég skrifaði eitthvað á þessa blessaða síðu mína.
Það er búið að vera mikið að gera hjá okkur öllum, en núna fer þetta að róast, amk hjá mér í bili. Í dag fór ég í fyrra prófið af tveimur, hitt tek ég í lok mars.
Mér gekk vægast sagt ekki mjög vel í þessu prófi. Er svo sem ekkert hissa á því. Mjög margar blaðsíður að lesa um frekar tæknilega hluti, allt á sænsku. Svo voru spurningarnar allar svona páfagaukaspurningar, sem eru ekki mín sterkasta hlið.
Næsta próf er hálft svona páfagauka og hálft dæmi, svo það er aðeins skárra.
Eftir tvö verkefni, sem ég ætla að reyna að klára í þessari viku er ég komin í páskafrí! Þórdís er líka í fríi og ég hlakka mikið til að fara að stússast með dúllunni minni í stað þess að stressa mig á þessu námi. Við ætlum svo að heimsækja Huldu og Rakel í bústað um páskana í Smálöndunum og það verður örugglega æði!
Það fer nú heldur betur að styttast í hinn endann á náminu, því eftir þessa önn(ef ég næ að klára allt á þessari önn) á ég bara eitt fag eftir og verkefni. Ég er að spá í að fara bara að koma mér inn í verkefnið bráðlega, þá get ég jafnvel verið aðeins byrjuð í sumar.
Kári er búinn að vera heima með hlaupabólu í viku, sem hefur nú ekki beint hjálpað við próflesturinn, en hann er nú ósköp góður samt, svona oftast. :o)
Annars er bara lítið annað að frétta héðan af okkur. Við fengum góða gesti um daginn, Sögu og Helga, systkini Júlla, svo koma mamma og pabbi í byrjun apríl og Saga kemur svo aftur og Koki kærastinn hennar í lok apríl. Við ætlum líklega til Gautaborgar í maí. Svo koma góðir vinir í júní og svo er ekkert fleira planað. Við ætlum reyndar að fara í einhverjar ferðir á bílum í sumar, kannski til Þýskalands, Póllands og fleiri staða í þeirri átt og svo langar okkur líka að fara til Finnlands. En það á eftir að ákveða betur.