8.7.08

Í dag eru 2 vikur þangað til við förum til Íslands. Við erum farin að hlakka voða mikið til. Mikið búið að plana, amk allar helgar næstum alveg bókaðar.
Júlli fór á Hróarskeldu með Lundarvinum síðustu helgi og skemmti sér rosa vel. Við hin gerðum líka margt skemmtilegt. Fórum á ströndina, bíó, út að borða og ýmislegt fleira. Það er búið að vera svo gott veður en í dag er víst spáð þrumuveðri.
Ég er að reyna að halda áfram með verkefnið, allar mælingar búnar og núna er bara sjálfsagi og enn meiri sjálfsagi :o|
Langar samt mest til að lúlla lengi og leika mér ;o)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home