heidan.blogspot.com
25.11.05
23.11.05
Kisukrílin :o)
Eins og ég hafði reiknað út komu litlu kettlingarnir hennar Skottu í heiminn á sunnudaginn, 20. nóv.Það komu 6 litil kríli, en einn var svo lítill að hann lifði ekki. Þannig að við eigum núna 5 lítil spræk kisukríli.
London var algjört æði. Árshátíðin var alveg frábær. Slepptum alveg túristapakkanum og vorum eiginlega allan tímann á pöbbum og í búðum. :o)
Hótelbarinn var vinsæll, eins og sést greinilega á vísareikningnum.
London var komin í jólabúning og jólalögin voru spiluð í búðunum.
Nú eru bara nokkir dagar í aðventu, en þá ætla ég að skreyta smá og hengja upp seríur og svona. Reyna jafnvel að muna eftir aðventukransinum :oD
En það er gott að koma heim til Kára og Þórdísar. Kári er reyndar búinn að vera veikur um helgina og í gær fórum við með hann til læknis og þar kom í ljós að hann er kominn með eyrnabólgu. Þórdís er víst líka veik núna, með einhverja magapest.
17.11.05
London baby!
Á sama tíma á morgun verðum við Júlli í flugvélinni á leiðinni til London. Það er komin smá spenningur í mallann, ásamt smá kvíðatilfinnginu. Ég verð í burtu frá litla kútnum mínum í 4 daga! Vonandi næ ég að gera eitthvað annað en að sakna litlu krakkanna minna :o)
Stundum finnst mér svo skrítið að pæla í því að ég sé 2ja barna móðir og bara 26 ára :oP Finnst í alvöru stundum ég sé að fara að vakna upp af draumi. Hvernig getur þetta verið raunveruleikinn að eiga 2 fullkomin börn, sem sofa á nóttunni, eru svona góð og heilbrigð og svona ógurlega falleg?!!
Þegar maður sér hvað er margt hræðilegt að gerast í heiminum og hefur gerst og bara almennt sú fátækt og eymd fær að vera í heiminum.
Við Júlli horfðum loksins á Hótel Rúanda um daginn. Get ekki sagt að mér hafi liðið mjög vel á meðan og ég gat ekki haldið aftur af tárunum.

10.11.05
Mikið að gera.
Bloggletin er ríkjandi á þessari síðu eins og svo mörgum öðrum. Hins vegar er ég búin að vera dugleg í öðru síðustu daga.
Ég fór í saumó til Betu í gær. Það var alveg meiriháttar, bara 5 á landinu og voða kósí. Þriðjudagskvöldið fórum við nokkrar vinnustelpur á Ólíver.
Við Kári vorum bara heima á mánudaginn, því það var frí hjá dagmömmunum hans og það var alveg frábært. Ég gat bæði tekið skurk heima, þvottavélin búin að vera biluð og afmæli í gangi svo ekki veitti af, og verið með Káranum mínum.
Á sunnudaginn fórum við og sáum Edith Piaf. Alveg meiriháttar flott sýning.
Svo var afmælisboð fyrir fjölskylduna á laugardaginn.
Svo er minns bara byrjaður í leikfimi. Búin að kaupa mér kort í Curves. Hægt að lesa um það á curves.com. Algjör snilld og mjög skemmtilegt :o)
Á morgun förum við í sumarbústað með Hófí og Gunna. Það verður örugglega æðislegt. Komast aðeins út í sveitina :o)
Svo á morgun er bara vika í London ferðina... Skotta er svo kettlingafull að þegar maður horfir á risamagann, sér maður litlar loppur potast þar til :o)
Ég vona að þeir komi áður en við förum út. Hvað getur maður gert til að koma af stað fæðingu hjá ketti? Láta hana skríða eða labba upp og niður stiga eins og með okkur?
Ef þeir verða ekki komnir óska ég eftir einhverjum sem vill koma og vera hjá henni 18.-21. nóv.

2.11.05
Úff ég skipulagslega fötluð!
Það er allt of mikið sem þarf að plana og muna þassa dagana.
Það er vetrarfrí í skólanum í dag, morgun og hinn.
Kári er í fríi föstudag og mánudag.
Þórdís er að fara til læknis í dag.
(Hvernig á maður að geta verið í fullri vinnu?)
Kári í 10 mánaðaskoðun eftir 1 og hálfa viku.
Ætlum að halda afmæli á laugardaginn.
Við erum að fara á Edith Piaf á sunnudag og það þarf að redda pössun.
Hvernig fer fólk eiginlega að sem á fleiri en 2 börn?
Ég er alveg að verða klikkuð á öllu sem þarf að muna eftir.
Svo tókst mér að skrifa miða með dagsetningu og tíma, sem ég man engan veginn hvað var.
Við ætlum í sumarbústað með Hófí og Gunna um þarnæstu helgi og svo London helgina á eftir.
... og það versta er að ég er svo gleymin að ég er alltaf að hugsa um allt sem þarf að gera. Fer allt of mikill tími í það :oS