heidan.blogspot.com

27.2.04

Flöskudagur!
Bara komin heim í góðum fíling og slapp við langan dæmatíma, sem er gott!!
Ég ákvað í dag að ganga leið sem ég held ég hafi bara aldrei labbað heim úr háskólanum.
Á þessari leið mætti ég nokkum ungum stúlkum sem minnti mig á gamla daga.
Þær voru semsagt að hlaupa hinn hressandi tjarnarhring í leikfimi í MR.
Frekar fyndið að sjá þær nokkrar hlaupandi í támjóum stígvélum og þröngum gallabuxum.
Við fórum nú yfirleitt í leikfimiföt, en hlupum yfirleitt beint á kaffihús.
Það er alveg ótrúlegt hvað tíminn líður.
Það er bráðum að síga á seinnihluta þrítugsaldursins..
og maður er búinn að vera næstum 4 ár í Háskólanum!!!

26.2.04

Jæja MR kominn áfram í Gettu betur.
Þetta var erfið keppni.
Ég vissi ekki alveg hverjum ég átti að halda með!
Gamli skólinn minn vs. tengda/stjúpfrændur!
Ekki segja neinum en ég hélt pínu meira með MR

Merkilegt hvað maður er fljótur að gleyma :o)
Á morgun er stefnan tekin á vísindaferð í Fjarhitun
og eftir það er svo náttfata-/svefn-/afmælispartý hjá Arndísi skvísu í Mosó.
Á laugardaginn er svo útskrift hjá Björk.
Þetta verður alveg massíf helgi greinilega.

25.2.04

Jæja hérna er skvísan, pínulítið lasleg greyið.

24.2.04

Jæja Jasmín prinsessa er tilbúin :o)

23.2.04

Bolludagur!
Litla mín gleymdi alveg að bolla mig, heppni því ég bakaði engar bollur.
Gærdagurinn fór aftur á móti í saumaskap.
Ég lofaði henni nefninlega sauma á hana öskudagsbúning.
Þið sem hafið séð Sunnudagsmoggann, atvinnusíðurnar vitið hvað litla stelpan mín ætlar að vera þegar hún er orðin stór.
Hún verður Jasmín prinsessa úr Aladdín.
Ég saumaði á hana ljósbleikar glansandi pokabuxur og í dag ætla ég svo að gera á hana topp í stíl.
Svo bað hún mig um að lita á sér hárið svart!
Ég held mér hafi tekist að sannfæra hana um að það væri miklu flottara að vera ljóshærð Jasmín.
Ég tek mynd og set á netið þegar hún er komin í dressið :o)

21.2.04

Var að setja inn Árshátíðarmyndirnar.
Þetta var hin fínast árshátíð. Ámundi var með smá uppistand og tókst alveg frábærlega. Forstjóri Opinna kerfa var heiðursgestur og hann var ótrúlega fyndinn, með dónabrandara dauðans!
Svo voru skemmtiatriði og strákarnir á 2. árinu toppuðu þau algjörlega. Þeir voru snilld :o)
Maturinn var fínn, ég gat samt ekki borðað mikið, er enn með illt í mallanum :o(
Svo voru strákarnir í Svitabandinu frábærir!
Síðustu árshátíð minni, að öllum líkindum, í Háskólanum lokið.

...og ég gleymdi miðanum heima!

19.2.04

Skrítið, ég er bara ekkert hress lengur. Mér líður illa.
Mér er óglatt og illt í maganum og skjálfandi :o(
Ég er búin að vera svona svo lengi og það er frekar að versna en batna.
Þ.a. að ég fór í apótek (gott að hafa afsökun ;o) og fékk eitthvað sniðugt við ógleði.
Heyrðu kallinn bara horfði á mig eins og ég hefði eitthvað að fela.
Skiljiði? Hann sagði að kannski væri eðlileg skýring á ógleðinni og glotti.
Halló!! Ég held ég myndi nú vita það!!!

Heiða er hress!!!
Ég fór að sofa í gær kl. 9 og held ég sé alveg útsofin.
Hvað er betra en sterkur expressóbolli svona snemma morguns?
Jú tveir sterkir expressóbollar :o)
Ég er að hugsa um að nota hressleikann í dag í stærðfræðigreiningu, sem ég hef verið að vanrækja á síðustu vikum.
Spurning hvort Inga Rut skvísa komi með, annars truflar hún bara einbeitingu mína ef hún mætir ;o)
Eins gott hún er ekki með mér í dæmatímunum líka...

18.2.04

Gleði og hamingja

Féll ekkert í álag og öryggi, eins og kom fram á einkunnasíðunni minni.
Ég er búin að gráta mikið, allt Júlíusi Sólnes að kenna, stakk af til útlanda og gaf mér 0 fyrir prófið!!!
Náði seinna prófinu, þ.a. ég þarf bara að taka sjúkrapróf í öðrum hlutanum!!!

Ég er farin að sofa....

17.2.04

Jæja nú er hátíð árs á föstudaginn.
Þetta er mín fjórða í Háskólanum og sú síðasta að öllum líkindum.

Fyrsta árshátíðin var í Súlnasal á Hótel Sögu. Ég þekkti engan nema náttla Júlla, Daða og Hörpu hjúkkuvinkonu. Stelpurnar í byggingunni fóru meira að segja í partý og buðu mér ekki með. Skipti engu því ég þekkti þær eiginlega ekki.
Annars man ég ekki mikið eftir henni

Önnur árshátíðin var líka á Hótel Sögu. Hún var snilld. Nördarnir spiluðu írska þjóðlagatónlist og allir dönsuðu.
Man samt ekki mikið eftir henni.

Þriðja var svo á Hótel Selfossi. Byrjuðum á að fara í frábæra ferð með bekkjavinum frá Selfossi. Þeir höfðu skipulagt ferð um sveitir og bæinn og við drukkum og svo fóru allir í pottinn hjá Hjalta nema aumingja við í stjórninni, sem fórum í myndatöku. Ég var eina stelpan í stjórninni og þess vegna fór ég ein inn á herbergi að ákveða í hverju ég ætti að vera.
Þessi árshátíð var bara þrælfín!

Núna í ár verður svo farið á Hótel Örk og það er bara kominn smá fiðringur í mig :o) Ég ætla að kúra með Dagnýju.
Þið trúið þessu kannski ekki en ég er í fyrsta sinn búin að ákveða í hverju ég verð nokkrum dögum áður.

Ég held ég hafi gleymt miðanum heima í tveimur fyrstu, en þurfti ekki miða á þriðju, sem minnir mig á það að ég er ekki komin með miða á þessa...

16.2.04

Skrítið hvað maður er stundum lélegur bílstjóri. Í dag var ég mjög hættuleg sjálfri mér og öðrum. Það var hálka og ég á heilsársdekkjum, var utan við mig og ætlaði aldrei að koma bílum í stæði þegar ég kom heim.
Ætlaði en sé samt ekki fram á að ganga í skólann á morgun. Erum að fara með Stálkennurunum að skoða vörumiðstöð Samskipa.
Nema að ég vakni kl 7, mæti í stærðfræðigreiningu OG að Inga Rut mæti líka OG ég fái far.
Ekki miklar líkur.
0,05 * 0,05 * 0,90 = 0,00225 eða 0,225 % líkur
..annars var ég nú aldrei sleip í líkindareikningi!

Hey og við eigum 10 rauðvínsflöskur, eða 9 núna :o)

15.2.04

Í dag!!!

10.2.04

Við vorum að kaupa okkur disk í skífunni á 290 krónur.
Þessi texti er í einu laginu á disknum. algjör snilld :o)

...
Ég kann vel við þig en ég kann betur við vinkonu þína
hún er fyrirmyndareintak af góðum kvenmanni
og þú ilmar vel en ég tel að hún ilmi betur
það er auðveldara að muna hvað hún heitir
þegar ég kem þreyttur heim
hún er ein af þeim sem vaskar upp og sofnar snemma
...

Þekkiði lagið?

9.2.04

Ég setti innskráningu á háskólapóstinn þarna til hliðar.
Algjör snilld þykir mér.
Svo er innskráning í vefkerfið þarna langt fyrir neðan.
Mér finnst þetta soldið flott ;o)

Mánudagur enn og aftur...
Á föstudaginn fór ég í snilldarferð á Verkfræðistofuna VST.
Þar voru frábærar veitingar, hvítvín og bjór.
Eftir það fórum við á Pravda, þar sem Vaka var að krækja sér í atkvæði með bjór, veit ekki hversu vel gekk...
Ég fékk bara einn, en var samt ekki í neinu gulu og búin að losa mig við blómið.
Eftir það fórum við Dagný á Kaffi kúltúr og hlustuðum á Angurgapa.
Þeir eru frábærlega hressir og stemningin í samræmi við það.
Hittum hressa stráka og grettum okkur í myndavél VIR.

5.2.04

Við fengum Röskvukynningu í Stærðfræðigreiningu og vorum kvött til að skrópa til að mótmæla skólagjöldum. Við Auður og Þórunn létum sko ekki segja okkur það tvisvar og tókum höndum saman ásamt fullt af háskólafólki. Vorum meira að segja beint fyrir framan myndavélarnar ;o)
Hitti svo Björk og fór með henni að hitta vinnustelpurnar, Ingu Rut og Ólöfu, á Beygluhúsinu. Namm voða gott.
Í kvöld verður svo saumó hjá Arndísi og annað kvöld vísindaferð á VST.
Annars var ég að vona að fylkingarnar sem slást um meirihluta í stúdentaráði væru að gefa nammi og eitthvað gott,
en ég sé ekkert nema einhverja bæklinga, sem mér dettur ekki í hug að lesa nema ég fái nammi.... ;o)

2.2.04

Sumarbústaðarferðin var mjög skemmtileg.
Við byrjuðum á því að drekka og elduðum svo og drukkum meira og borðuðum.
Ætlunin hafði verið að fara í pottinn, en öll rör voru svo frosin að það var ekki hægt.
Svo fórum við í Partýspilið og drukkum meira.
Eftir spilið varð ég allt í einu rosa þreytt og fór inn í herbergi og sofnaði.
Svo vaknaði ég klukkan 4 og þá voru allir alsberir í pottinum. :o)
Þá hafði verið brugðið á það ráð að tengja slöngu úr eldhúsvaskinum í pottinn.
Ekki veit ég af hverju allir voru alsberir, en ég auðvitað skellti mér bara út í og byrjaði aftur að drekka.
Við Júlli elduðum okkur svo massíva hamborgara kl hálf átta og fórum svo síðust í rúmið.
Hressandi ferð í alla staði.