heidan.blogspot.com

31.12.03

Tók smá vídjó af Þórdísi að syngja jólalag.

Lord of the ring
Í gær fórum við og horfðum á The fellowship of the ring og The two towers í lengdum útgáfum hjá Hófí og Gunna. Ég hélt kannski að þetta yrði eitthvað erfitt því hvor myndin er um 3 og hálfur tími.
Þetta var samt bara algjör snilld og mér fannst myndirnar bara betri en þegar ég sá þær í bíó.
Nú verður maður að fara að drífa sig á The return of the King.

Hvað á að gera í kvöld?
Við vitum ekki alveg hvað við ætlum að gera eftir að áramótin hafa verið sprengd. Er einhver að fara að gera eitthvað skemmtilegt?

27.12.03

Mynd af nýju myndavélinni.


Júlli ætlar að búa til myndasíðu... jei!

GLEÐILEG JÓL!

Á aðfangadagskvöld vorum við þrjú bara heima og elduðum humartartalettur og hunangsgljáða önd. Á jóladag fórum við um daginn til ömmu hans Júlla í hangikjöt og um kvöldið danskt jólahlaðborð til mömmu og pabba. Þetta boð er alltaf snilld, svoo gott og nóg af bjór, rauðvíni og ákavíti, þetta er árlegt. Eftir það komu svo nokkrir sjaldséðir vinir heim til okkar að spila til næstum 7 um morguninn, sem er líka árlegt. Í kvöld vorum við svo í lambalæri hjá afa mínum sem er líka árlegt og mjög gaman.

En nú þegar mesta jólaboðatörnin er búin og maður er kannski aðeins farinn að jafna sig er kannski ágætt að minna á sig hérna á blogginu.

Ég er búin að fá svo mikið af flottum gjöfum. Ilmvatn, geisladiska, pasmínu, hálsmen, bækur, blandara(sem við þurfum að skipta - eigum svoleiðis), stóran pott, handklæði, táslusokka, skó, bodylotion, scrabble, digital myndavél, vettlinga og nammi.

Þið sem hafið ekki fengið jólakort frá mér gætuð átt eitt í póstinum (var soldið sein) eða fáið bara ekkert :o)

19.12.03

Ég er búin að gera smá góðverk líka :o)

Reikningsnúmer Geðhjálpar: 1150-15-553443
kennitala: 531180-0469.

17.12.03

Jæja þá er maður bara kominn í jólafrííííí, jei!!!
Planið er að fara á Finding Nemo með snúllunni minni,
fara á morgun út að borða með fallega fólkinu á 3. ári
og svo bara vera í jólaskapi og skemmta mér :o)

14.12.03

Þar hafiði það...

breast implants!

YOU HAVE BREAST IMPLANTS!!!
what's YOUR deepest secret?
brought to you by Quizilla

Samgöngutæknin er komin á netið.

11.12.03

Love actually
Fór í bíó í gær með Cillu, Dagnýju, Ólöfu og Pétri. Mæli sko með henni. Alveg komin í jólaskap núna, keypti meira að segja fyrstu jólagjöfina áðan, er oftast að þessu á Þorláksmessu ;o)
Við Þórdís fórum svo áðan í bæinn að mótmæla. Var reyndar ekkert hrópandi og kallandi, eins og sumir þarna, en ég er alveg hneiksluð á þessu.

Vá hvað mín vandamál eru smávægileg þegar maður les þetta!

10.12.03

Baggalútur er snilld!

9.12.03

Straumfræðilestur dauðans
Ohh mér leiðist. Er búin að hafa allt of langan tíma fyrir þetta próf. Venjulega hef ég verið með verstu próftöflu í heimi og núna þegar ég hef nógan tíma er ég bara alveg búin að fá nóg.
Það er ekki eins og ég kunni þetta allt, langt í frá, en maður getur bara ekki lesið svona lengi fyrir eitt próf!!!
Kannski er ég orðin of vön slæmu próftöflunni...

En það eru átta dagar í jólafrí!!!

4.12.03

"Light Power"
..var nafn á fyrirlestri sem ég fór á áðan. Hann fjallaði eins og nafnið gefur til kynna hvernig ljós geta haft áhrif á byggingar, innan og utan.
Það voru tveir menn sem kynntu sín verk, Breti og Bandaríkjamaður og það sem mesta athygli vakti hjá mér var, að sjálfsögðu, brú! Lýsingin var í höndum Bretans og samstarfsfélaga frá Speirs and Major Associates. Bandaríski stíllinn heillaði mig alls ekki.
Ef það er eitthvað sem mig langar að sjá þegar við förum til Bretlands í apríl, þá er það þessi brú. Helst langar mig að sigla undir hana að nóttu til OG fara yfir hana.


Þetta er ein sú flottasta hönnun á brú sem ég hef séð, bæði verkfræði- og arkitekúrlega séð.
Svo þegar skipin sigla undir veltur allt dæmið, bæði boginn sem heldur brúnni uppi með köplum og hún sjálf.
Ég held ég viti af hverju ég fór í verkfræði :o)


Hér er hægt að sjá fleiri myndir.

Hér sést líka lýsingin hjá Speirs and Major.

Gateshead Millenium Bridge