heidan.blogspot.com

19.11.06

Helgin

Þessi helgi er búin að vera rosaleg. Hún byrjaði eiginlega á fimmtudaginn, þegar við fórum á Vitabar og svo á Borat í bíó. Guð minn góður hvað ég hló!
Á föstudaginn fórum við svo aftur á Vitabar ;o) og svo á tónleika í Fríkikirkjunni með Sufjan Stevens. Það var svo æðislegt.
Eftir það var svo brunað upp í Laugardalshöll þar sem Sykurmolarnir voru. Það var líka magnað! Rosalega góð stemning og gaman að sjá hvað þau höfðu gaman að þessu sjálf :o).
Eftir það fórum við á Barinn og fengum okkur bjór. Mér leið eins og ég væri eldgömul og ég er alveg pottþétt á því að margir þarna inni voru ekki orðnir 20 ára.
Í gærkvöldi fór ég svo í vinnustelpupartý og það var frábært líka.

6.11.06

2. sætið er besta sætið ;o)

Um helgina var árshátíð hjá okkur á Hönnun.
Ég tók þátt í RockStar Hönnun og varð í 2. sæti :o)
Þeir sem hafa áhuga fá kannski að sjá myndbandið af þessu við tækifæri. En þetta var þannig að það voru 6 keppendur sem sungu með hljómsveitinni Housabandið Hönnun :oD
Ég er alveg ótrúlega kát með að hafa lent í 2. sæti því ég hugsa að ég hefði dáið úr feimni á árshátíðinni ef ég hefði þurft að syngja life. Þetta var nefnilega bara tekið upp fyrirfram og ég þurfti bara að syngja fyrir framan 10 manns.
Sá sem vann þurfti að syngja með hljómsveitinni sem spilaði á árshátíðinni.
Kannski er þetta upphafið á glæsilegum söngferli mínum ;o)


Svo ætla ég að óska Möllu innilega til hamingju með að vinna silfurverðlaun á Evrópumeistaramótinu í hópfimleikum í Tékklandi...

og Huldu og Rakel Júlíönu til hamingju með fallega nafnið :o)