heidan.blogspot.com

25.8.06

Allir að kjósa Magna okkar :o)

23.8.06

Jæja nú er daman byrjuð í skólanum. Það er nú ágætt fyrir utan það að við erum ekki komin með pláss í skólaskjólinu. Þórdís er á biðlista eins og mörg börn í Reykjavík skv. fréttunum um daginn.
Kári er enn þá hjá dagmömmu, en við vonumst til að fá leikskólapláss fyrir hann í haust. Það munar okkur 28 þús að vera með hann þar!(Ieða yfir 100 þús fram að jólum) Hann er víst númer 4 í röðinni inn á Grænuborg svo við erum þokkalega bjartsýn.
Þessa dagana eru margir að missa sig yfir Rockstar Supernova. Ég er á meðal þeirra :o) Ég gat samt ómögulega vaknað í nótt til að kjósa hann Magna okkar. Bendi á síðu ef þið viljið ekki missa af neinu. Ég var reyndar svo forvitin hvernig þetta færi núna í kvöld að ég las einhvern spoiler og þarf því varla að horfa á þetta í nótt. Hlakka samt til að sjá hver spilar með hljómsveitinni, en mig grunar nú alveg hver það verður.

10.8.06

Mont ;o)

Ég prjónaði smá í fríinu.
Bara peysur krakkanna, Júlla peysu gerði ég síðasta sumar held ég.

9.8.06

blogg

Ég er mætt aftur til vinnu eftir 3ja vikna frí. Ég hef ekki verið í svona löngu fríi síðan haustið 1999. :oP
Þetta var alveg meiriháttar. Við náðum að gera margt og fríið leið ekki eins hratt og ég hélt.
27. júlí fórum við á tónleikana á Nasa með Belle and Sebastian. Þeir voru alveg frábærir!
Við fórum í 3 ferðir út á land. Fyrst til Akureyrar/Svarfaðardal á ættarmót. Sváfum í tjaldi. Gott veður en ekki gott bak.
Næsta ferð var á Ísafjörð til Helgu verkfræðiskvísu. Gistum í íbúðinni þeirra, sem betur fer. Fórum á kajak, keyrðum upp á Bolafjall, grilluðum hrefnu og naut, grænmeti og banana. Fórum í picknick á ströndina í frekar hryssingslegu veðri :o) Alveg rosalega skemmtileg ferð.
Á sunnudeginum brunuðum við Júlli svo í bæinn til að komast á Sigurrósar tónleikana á Miklatúni.
Síðasta ferðin var núna um verlsunarmannahelgina á Vík í Mýrdal. Gistum á gistiheimili. Mjög skemmtilegt, fórum í eina stutta fjallgöngu, skoðuðum ströndina við Reynisdranga, grilluðum og höfðum það gott.

Í kjallaranum hefur ekki mikið gerst, en þó er stutt í að drulluvinnunni sé lokið.

Svo auðvitað varð ég árinu eldri og fékk fullt af fínum gjöfum :o)