heidan.blogspot.com

9.6.06

B & S og BéEss

Eftir að vera mikið búin að tala um að Belle and Sebastian yrðu bara að koma til landsins annars myndum við Júlli fara út og heyra í þeim eru þeir að fara að koma :o)
Ég sat með hraðann hjartslátt í gær kl. 10 og keypti miða og ég bara brosi hringinn.
Kannski líka út af því að ég er að fara að útskrifast 24.júní. Fór í gær og skoðaði prófið og það kom í ljós að ég þarf ekki að taka prófið aftur í sumar. Ég verð loksins B.Sc. ;o)
Þvílík gleði og hamingja að þurfa ekki að eyða dýrmætu sumarfríi í próflestur. :oD

6.6.06

Hestar! + Húsið (4)

Ég hef verið með hálfgert hestaæði frá því að ég var lítil. Alltaf þegar við fjölskyldan fórum í ferðir innanlands kölluðum við systir mín alltaf "HESTAR!" þegar við keyrðum framhjá hestum. :o) Mamma stóð einu sinni í biðröð í marga klukkutíma fyrir utan Laugardalshöllina til að koma mér á hestanámskeið.

Ég fór á hestbak á föstudaginn og það var svo æðislegt. Ég gæti sko alveg hugsað mér einhvern tímann að eignast hest. Kannski ekki núna á næstunni þar sem maður hefur engan tíma fyrir neitt. Kannski eftir 10 ár ;o)

Framkvæmdir mjakast og ég var að setja myndir á myndasíðuna. Hann Júlli minn er svo duglegur, var langt fram á kvöld að fylla í innkeyrsluna. Áfram verður steypt í vikunni og ég ætla að ná í mold og gera garðinn fínan þannig að hægt sé að bjóða í grillveislur og svona. Ef einhver á gamlar hellur má hann láta mig vita. Mig langar helst í gamlar og mosavaxnar gangstéttarhellur :o)