heidan.blogspot.com

29.5.06

Miðbærinn og kosningarnar

Jæja nú býður maður spenntur eftir því hvernig kjörnir borgarfulltrúar ætla að mynda meirihluta. Hvort Ólafur F ætlar í samstarf með gamla R-listanum eða að skríða aftur upp í með sínum fyrrverandi.
Mér finnst svo oft fólk tala um að miðbærinn sé slæmur og þar verði að taka til hendinni. Að það sé ógeðslegt í bænum og hættulegt fyrir börn o.s.frv.
Ég er svo gjörsamlega ósammála þessu og held að þeir sem þetta segja búi í úthverfum og þekki ekki miðbæinn, fari bara þangað bara til að djamma og sjái þá miðbæinn bara þannig.
Ég geng í miðbænum oft í viku, ef ekki daglega og það alltaf er líf í bænum. Þegar það er gott veður er alveg troðið og ef það er kalt er líka fólk.
Stundum hefur mér dottið í hug að selja húsið í miðbænum og kaupa ódýrara lengra í burtu, en alltaf kemst ég að þeirri niðurstöðu að ég vil bara búa í miðbænum. Maður getur gengið niður á Laugarveg, skoðað í búðarglugga, farið niður að tjörn, sest inn á kaffihús eða út ef gott er veður. Það er frábært að setjast á Austurvöll að sumri til og fá sér einn bjór, meðan krakkarnir finna sér vini í kring :o) Það er ekki svona stress eins og er alltaf í Kringlunni.
Það er rosalega gaman að ganga göturnar í kring líka, Grettisgötuna, Njálsgötuna, Kárastíginn :o).... Skoða húsin og sjá að flestir hugsa vel um húsin sín. Alls staðar er verið að gera upp það er gamalt og fallegt!
Miðbærinn er uppáhalds staðurinn minn. Gömlu fallegu húsin og meira að segja þau sem eru í niðurníðslu hafa sinn sjarma. Á Lækjartorgi eru krakkar að dansa og Ingólfstorgi að renna sér á hjólabrettum.
Það sem þarf að gera fyrir miðbæinn er að passa að þeir sem vilja bara græða peninga komist ekki í lóðirnar sem eru þar. Það virkar nefninlega ekki hérna. Ef maður gengur Laugarveginn eru það frekar stóru nýju húsin sem standa auð.
Það eru nokkur hús við Laugarveginn sem mættu alveg fara, en það á alls ekki að byggja risavaxnar byggingar þar. Í tillögu sem liggur fyrir núna á að rífa 2 hús(Lífstykkjabúðina og Nikebúðina) sunnan megin og reisa 4-5 hæða hús. Það þýðir að sólin hverfur alveg þar. Hvort viljum við 5 hæða hús eða fólk?
Ég trúi því að fyrst það tókst að gera Skólavörðustíginn svona fallegan er líka hægt að gera það sama við Hverfisgötuna.
Svo er það Lækjartorg. Það þarf að opna samkeppni um að gera Lækjartorgið glæsilegt. Klára tónlistarhúsið og tengja það við miðbæinn.
Svo vil ég bíllausa langa laugardaga!
Svo þarf fólk að kenna börnunum sínum að henda rusli í ruslaföturnar og þá er miðbærinn orðinn fullkominn :o)

17.5.06

Mikið framundan

Í kvöld erum við Júlli að fara á CocoRosie tónleikana. Förum í grill á undan :o) Á morgun er svo Eurovision og aðrir tónleikar, Joanna Newsom. Á föstudaginn er svo íþróttamót Hönnunar og laugardaginn Eurovision og partý :o)

Smá prófapirringur í gangi hérna. Var að komast að því að af 24 sem féllu í stærðfræðigreiningunni voru 16 úr byggingarverkfræði. Ansi stórt hlutfall þykir mér. Byggingarverkfræðin er eina verkfræðiskorin sem hefur enn þá þetta fag í BS-hlutanum. Hjá Vélinni og Rafmagninu er þetta val í Masternum. Hinir í þessu námskeiði eru t.d. eðlisfræðinemar sem hafa allt annan grunn en við. Það er svo margt fáránlegt í gangi í þessum skóla. Verið að spara með því að hrúga öllum í sama námskeiðið í staðinn fyrir að láta okkur læra stærðfræði sem er tengdari okkar fagi. Asnalegt að vera fastur í þessu út af einhverju svona rugli. Úti í hinum norðurlöndunum hljóta að vera stærðfræðinámskeið sérstalega fyrir verkfræðinema. Kannski ætti maður bara að reyna að fá að klára þetta úti...

16.5.06

Húsið (3)

Við rákum smiðina okkar, þeir ætluðu að okra á okkur. Um helgina smíðuðum við Júlli smá í innkeyrslunni, svo að hægt sé að fylla aftur í hana. Kassa með tröppum niður að dyrunum. Í þessari viku ætlum við að reyna að steypa í þessi mót sem komin eru og fylla í innkeyrsluna. Um næstu helgi ætlum við að reyna að halda eitthvað áfram sjálf í kjallaranum, því brjótararnir komast ekki alveg strax til að taka vegginn. gætum örugglega lagað aðra veggi í millitíðinni.

Hérna eru myndir fyrir forvitna :o)

10.5.06

Húsið (2)

Nú er sko eitthvað byrjað að gerast hérna niðri :o) Það voru smiðir hérna í allan dag að slá upp mótum og járnbenda. Svo verður örugglega steypt á morgun eða hinn.
Næst er svo á dagskránni að fá brjótarana til að koma aftur og brjóta meira. Við ætlum að láta þá taka þykkan, hlaðinn millivegg og setja stoðir eða súlur í staðinn. Það verður nú spennandi að sjá hvort húsið hrynur :o)
Við Kári vorum heima í dag eins og á mánudaginn og Kári litli lasni svaf vært þó væri verið að saga, negla og bora. Júlli var heima í gær og verður heima með hann á morgun.
Hrikalegt þegar barnið manns er svona veikt :o(

6.5.06

Prófið nálgast...

Omg prófið er eftir rúman klukkutíma og ég verð nú að segja að mér líður ekki of vel. Hvers vegna missir maður hæfileikann til að læra? Eða taka próf? Ég er svo hrædd um að klúðra þessu, því ég ætti alveg að geta þetta. Kann alveg slatta. Verst er að hafa ekki gamalt próf til að sjá hvernig próf hann gerir. Nú fer maður í próf og veit ekki á hverju maður getur átt von. Kannski kemur hann með svipuð dæmi og í vetur og kannski bara eitthvað allt annað. Kannski eru spurningarnar úr hverju atriði fyrir sig og kannski skellir hann þessu öllu í hafragraut og maður þarf að finna Fourierummyndun og hafa hnitaskipti, hliðra og tegra og finna svo með þrepun og innsetningu Dirac delta fallið :oS
Minns er hræddur!

4.5.06

My Lady Story

Datt ekki í hug nein fyrirsögn svo ég setti bara lagið sem ég er að hlusta á. Það á svo sem ágætilega við. Ég er að reyna að læra og langar alltaf að gera eitthvað annað. Gærdagurinn fór í mest eitthvað annað vegna þess að Þórdís fékk gubbupest og var heima. Nóg að gera að þrífa ælurúmföt og utan af sófanum(jamm greyið er ekki með sitt rúm núna í plássleysinu). Góð tímasetning hjá þeim systkinum að fá bæði gubbupest meðan ég er í próflestri. Kári var gubbandi í 3 daga um helgina.
Finnst eins og það eina sem ég skrifa um sé gubb, lærdómur og húsið. Þannig að ágætt að koma með update af húsinu núna ;o)
Við erum búin að ákveða að taka niður einn risastóran hlaðinn steinvegg til að búa til meira pláss. Júlli er búinn að vera að hamast með höggborinn og pleisið fer að verða tilbúið fyrir smið að slá upp mótum og múrara til að steypa og setja járn.
Fyndið en allir þeir iðnaðarmenn sem koma niður í kjallarann missa andlitið og verða hálfhræddir. Segja iðulega: "þið verðið að segja mér NÁKVÆMLEGA hvað ég á að gera!" og "þetta er erfiðara en að byggja nýtt!". Jámm spurning kannski um að steypa bara upp í þetta aftur og hafa þetta eins og það var... nei það er ekki hægt, svo maður verður bara að halda áfram. Gott að ég er svona snjall verkfræðilingur(að Júlla mati ;o)).

2.5.06

Lærðu asninn þinn!

Ég vorkenni mér svo mikið. Er að reyna að vera dugleg að læra og það er svo erfitt. Á meðan ég er að leiða út Legendre margliðuna er ég að reyna að redda smið og hafa áhyggjur af kjallaramálunum. Langar mest af öllu bara að fara niður og múra eða þvo þvott eða eitthvað annað en læra.