heidan.blogspot.com
31.1.06
30.1.06
Fór á Þorrablót á föstudaginn. Finnst þorramatur ekki svo góður og borðaði lítið. Hins vegar drakk ég mikið brennivín. Þetta tvennt í bland þýðir bara eitt... slakur árangur í borðtennis. :oS
27.1.06
It's a baby !!!
Var dugleg að vakna í morgun, komin á fætur rétt rúmlega 7. Ég var að segja við Júlla að ég ætti að biðja vinkonur mínar að eignast börn á hverri nóttu ;o)
Innilega til hamingju elsku Inga Rut mín.

13.1.06
Kári er orðinn eins árs!
Tíminn er svo fljótur að líða, mér finnst svo stutt síðan litli gaurinn minn fæddist.
9.1.06
Tónleikarnir
Tónleikarnir á laugardaginn voru frábærir. Auðvitað voru atriðin misgóð, en það eina sem þótti ekki gott var hvað Ghostigital fékk mikinn tíma.
KK var frábær, Björk var stórkostleg, SigurRós auðvitað frábær, þó hún hafi bara spilað eitt lag, Damion Rice var snilld, Hjálmar voru æði, Múm kom á óvart(hef aldrei hlustað á þá) og Bubbi stóð fyrir sínu.
Þetta voru held ég lengstu tónleikar sem ég hef staðið á. Byrjuðu um hálf 8 og voru ekki búnir fyrr en rúmlega 12.
Sem betur fer gat ég stolist til að sitja á pallinum, sem var fyrir fatlaða, áður en ég var rekin niður. Ætli ég hafi ekki verið rekin niður svona 5 sinnum :oP
Á föstudaginn fór ég til Ingu ístrubelgs. Við Inga, Björk og Dagný horfðum á Idol (ekki minn tebolli) og spiluðum(minn tebolli :o)). Við byrjuðum á Trivial, sem var lítið gaman. Held ég hafi kannski getað svarað einni spurningu rétt...
Svo spiluðum Catan. Ég var að spila þetta í fyrsta skipti og féll alveg fyrir því. Ég bara verð að eignast þetta spil!
Svo vil ég enda á því að óska Huldu skvísu til hamingju með síðuna sína nýju og allt hitt :o)

2.1.06
Gleðilegt ár :o)
Takk öll fyrir árið sem var að líða. Þetta er búið að vera stórfínt ár. Þar stendur auðvitað upp úr fæðing Kára míns og skemmtilegt sumar. Þórdís byrjuð í skóla, að lesa og orðin svo stór. Tvær utanlandsferðir, þá aðallega ferðin til Búdapest... og margt annað.
Ég var í fríi öll jólin, fyrir utan einn vinnudag milli jóla og nýárs.
Við fjölskyldan vorum 4 heima á kárastíg á aðfangadag. Humartartalettur í forrétt og önd í aðalrétt. virkilega gott og vel heppnað.
Pakkarnir hafa sjaldan verið fleiri og auðvitað flestir til krakkanna. Þó fengum við líka margt fínt og fallegt.
Á jóladag fórum við til mömmu og pabba og annan í jólum til systur minnar. Þar voru ekki færri pakkar. Eins gott að taka þetta í tveimur áföngum...
Við héldum eitt jólaboð og fórum svo í boð sjálf á gamlárskvöldi. Ekkert smá góður kalkúnn, fylling, sósa... slurk, þetta var alveg geggjað.
Horfðum á skaupið og fólki fannst það misgott. Þar sem ég er nær alltaf fúl eftir að hafa eytt tíma mínum í þetta og með engar væntingar, fannst mér það bara alveg þokkalegt. Ekkert frábært, en skárra en oft áður.
Við sprendum og drukkum freyðivín og enduðum svo með því að gista hjá tengdó :o) Nenntum ekki að taka leigubíl. Voða huggulegt að sofa aftur í gamla unglingaherberginu hans Júlla :o)
Nú er maður bara farinn að vinna aftur, allt of snemma. Hefði viljað vera í fríi í viku í viðbót, en maður fær víst ekki alveg allt sem maður vill.
Áramótaheitið er ekki að blogga meira og ekki líkamsrækt. Miklu skemmtilegra og betra en það :o)