heidan.blogspot.com

21.12.05

Snuddulaus :o(

19.12.05

Jólasveinninn minn :o)

Dagný vinkona gaf Kára jólasveinaföt.

14.12.05

Óheppin?

Í morgun átti ég að fara í endajaxlatöku, eftir að vera búin að fresta því í 2-3 ár held ég. Síðast þegar ég mætti var tannsi því miður nýbúin að fá inn til sín neyðartilvik og gat því ekki tekið mig. Jæja þetta var fyrir 2 árum held ég og ég frestaði því alltaf að panta tíma. Loksins gerði ég það og mætti stundvíslega í morgun kl. 8. En þá hafði hann verið búin að reyna að ná í mig til að láta mig vita að hann væri búinn að týna gleraugunum sínum og gæti ekki tekið jaxlinn núna.... Hverjar eru líkurnar?

Jæja að annarri óheppni. Fyrir nokkrum mánuðum bilaði þvottavélin okkar. Tromlan eða belgurinn var ónýtur og þurfti að skipta um. Svo ekki svo löngu seinna fór mótorinn og þurfi að skipta um hann. Já og við borguðum um 45 þús krónur í heildina, þar sem okkur fannst líklegt að þegar væri búin að skipta um allt í henni, yrði hún eins og ný og þetta er góð tegund, sem átti mörg ár eftir að mati viðgerðarmannanna. Í gær byrjuðu að heyrast rosalega hljóð úr þvottahúsinu og læti og þegar hún var hætt opnuðum við hana og tókum út úr henni... og við blasti ekki beint fögur sjón. Slatti af fötunum var rifinn og tættur og tromlan(held hún heiti það) var bara rifin. Stálið inni í vélinni! Rifið! Hvernig er þetta hægt? Það láku ekki fá tár, þar sem uppáhaldsbolir rifnuðu í tætlur.

Ég held það sé komin ágæt ástæða til að kaupa sér nýja vél, bara spurning um hvort tryggingarnar borgi þetta. Það er ekki langt síðan við splæstum í allan pakkann í tryggingunum ;o)
Heppin....

12.12.05

Stekkjastaur kominn til byggða... það þýðir að það eru bara 12 dagar til jóla.
Þar sem litli kútur er í fríi öll jólin, frá 20. des til 3. jan, ætla ég að taka mér eitthvað frí, svo það er til einhvers að hlakka.
Helgin var alveg stórfín. Fór á Jólaglögg/-hlaðborð í vinnunni á föstudaginn, með tilheyrandi vitleysu :o)
Á laugardaginn var lítið gert enda ekki allir jafnferskir ;o), en um kvöldið fórum við Júlli á alveg frábæra tónleika með Antony and the Johnsons. Maðurinn hefur alveg einstaka rödd og það var algjör unaður að sitja og hlusta á tónlistina hans.
Á sunnudaginn fórum við litla fjölskyldan í Árbæjarsafn og fengum smá gömul jól í æð. Rosalega gaman, en frekar kalt. Fórum svo til tengdaömmu í Grafarvogi í kaffi og jólakökur :o)

Næstu tveir miðvikudagar verða hressandi, sérstaklega fyrir veskið :oS. Endajaxlataka í þessari viku og heimsókn til heila- og taugaskurðlæknis í næstu viku, út af brjósklosinu.

1.12.05

Komin tími á smá skrif...

Ég lenti í því eins og svo margir aðrir að fá gubbupest og ég held það hafi ekki gerst síðan ég var lítil bara. Annars er ég svo gleymin að ég myndi það hvort sem er ekki :oP
Ótrúlegt hvað maður er lengi að ná sér eftir svona.
Við fórum á tónleikana með SigurRós, sem voru alveg frábærir fyrir utan það að við vorum í stæði og mér svooo illt í bakinu. En þetta var rosalega flott hjá þeim.
Um helgina skárum við út og steiktum laufabrauð og soðið brauð, bjuggum til aðventukrans og sörur(kláraði það samt ekki alveg).
Fór út að borða með saumóstelpunum á mánudaginn, mæli ekkert sérlega með túnfiskinum á Ólíver(æi kannski hefur það einhver áhrif að ég gubbaði honum ;o)).
Á eftir er konfektgerð í vinnunni :o) og svo er jólaföndur hjá Þórdísi á laugardaginn. Ætli þetta sé ekki alveg eins og þegar ég var í skólanum fyrir 11 árum síðan(vá tíminn líður :o|).
Það verður gaman að sjá alla gömlu kennarana mína og skólann aftur.