heidan.blogspot.com

31.10.05

Ég er 6 ára afmælisstelpu-mamma

Í dag á litla fallega stelpan mín afmæli. Hún er orðin 6 ára, með lausa tönn og farin að lesa smávegis.
Í gær buðum við litlum skvísum í afmælispartý. Það mættu þó ekki næstum allar sem við buðum og flestar létu ekki vita að þær kæmust ekki(eða foreldrarnir auðvitað). En þær voru þarna 6 stelpuskvísur og skemmtu sér rosalega vel.
Gaman að segja frá því að í þessum hópi var ein japönsk stelpa, ein kínversk, ein tékknesk, ein dönsk og tvær íslenskar. Þannig að það má með sanni segja að þetta hafi verið alþjóðlegt partý :o)

26.10.05

10 ár frá snjóflóðinu á Flateyri

Vá ég get ekki ímyndað mér hversu erfitt þetta hefur verið.

Elsku Sóley þú ert svo dugleg og sterk.

Knús og kossar til Sóleyjar og Óla sem misstu systur sína, vini og ættingja í snjóflóðinu.

Bylting...

Jæja nú er Kári litli líklega búinn að súpa sinn síðasta sopa hjá mömmu sinni. Mér finnst þetta voðalegt dapurleg tilfinning, en að vissu leyti líka bara gott. Fínt að litli gaurinn sé ekki háður því að fá sér sopa á morgnanna. Ég er alveg viss um að hann þarf ekkert á því að halda lengur, enda orðinn 9,5 mánaða gaurinn!
Heyrðu já ég var ekki búin að segja frá því að Kári nældi sér í 2 tennur í Búdapest :o)

Maður er nú ekkert smá sætur :o)

23.10.05

Brrr hvað er kalt...

Jæja tjeeellingin komin heim á klakann. Mér finnst nú alltaf gott að koma heim, þó að sumir hafi helst bara viljað flytja út ;o)
Úti var svona frá 13-20°C hiti en hérna var 3°C í Keflavík þegar við lentum.
Sóley, Stebbi og Margrét voru rosa góð við okkur. Elduðu fyrir okkur dýrindis mat, fóru með okkur út um allt að túristast og út að borða á fínum og góðum stöðum.
Það er nú ekkert smá hvað allt er ódýrt þarna úti. Verðið var mest þriðjungur af verði hérna heima og meðallaunin að sama skapi aaaðeins lægri en hérna heima, eða um 30 þús.
Við vorum mjög dugleg að drekka bjór, vín og mojito, enda var þetta ooof ódýrt sko.
Vigtin var líka ferkar ósátt við mig þegar ég kom heim og ég var búin að bæta á mig 3 kílóum á viku :o( Held þetta sé samt að lagast.

Á meðan við vorum úti komu 2 ný kríli í heiminn. Sólveig vinkona eignaðist gullfallegan prins 15. okt og Begga eignaðist yndislega prinsessu 20. okt. Ég óska þeim öllum til hamingju með það :o)

19.10.05

Kem heim ekki á morgun heldur hinn...

Heiða er hress í Búdapest. Það er rosalega ódýrt allt hérna ;o)
Vð fórum á fatafylllerí í dag. Keyptum fullt af flottum fötum og dót handa Dísu. Hlakka samt mikið til að koma heim og hitta þórdísi, mömmu, pabba og alla hina.

15.10.05

Búdapest

... er alveg frábær borg.
Við erum búin að setja nokkrar myndir á myndasíðuna.
Þær eru ekki í réttri tímaröð, en því verður kippt í liðinn við tækifæri.

12.10.05

Eitt knús :o)

BúdaPest á morgun góðir hálsar!

Mér líður óneitanlega hálf undarlega að vera að fara til Búdapest á morgun. Auðvitað hlakka ég ógeðslega til og allt það. En að fara frá Dísunni minni í viku :oS
Svo það að vera að þvælast með litla gaurinn og taka leigubíl með hann í engum bílstól, við þurfum sko að taka bíl frá flugvellinum. Mér líður illa við tilhugsunina. Kannski er hægt að redda þessu einhvern veginn.
Svo er spurning hvað við höfum mikið að drasli með. Það er nefninlega ýmislegt sem fylgir svona 9 mánaða gaur. Kerra, matarstóll, bleyjur, dót og eitthvað. Hvar á hann að sofa í flugvélinni? Við fáum örugglega ekki sæti fyrir hann. Fær hann eitthvað að borða þar?

Í gær fórum við Kári að heimsækja 2 sæta gutta Guðrúnar og Daða. Þeir eru nú meiri krúttin. Kári fékk smá skírnartertu og var ekkert svo abbó þegar ég fékk að prófa að halda á Hallgrími, meðan Þorsteinn var hjá pabba sínum. Mér finnst þetta alveg magnað að geta verið svona með tvo litla gutta. En þetta er örugglega rosalega gaman og kemst í rútínu. Skemmtilegt að heyra hvernig brjóstagjafarrútínan er, svo þeir fái jafn mikið en ekki alltaf úr sama brjósti. Alveg stórmerkilegt. :o)

10.10.05

Ég er þreyttur. Mig langar heim að lúlla. *geisp*

Ég óska eftir sms-i !

Mér tókst svo snilldarlega að eyða út sms á laugardaginn áður en ég gat lesið það eða séð frá hverjum það var. Líklega og vonandi var það bara auglýsing frá Símanum.
En ef sá sem sendi það er að lesa þetta núna, endilega senda annað. Takk takk. ;o)

9.10.05

Hár hár hár.....

Fyrir þá sem vilja sjá hvernig fór í klippingunni á föstudaginn.
Kíkið á þetta!

6.10.05

Súkkulaðilykt

Umm það er svo mikil súkkulaðilykt hérna í vinnunni. Þær eru víst að baka marsipanvínarbrauð handa okkur þessar elskur í eldhúsinu.
Á morgun fer ég í klippingu og ég er komin með smá kítl í mallann, því ég er búin að lofa Júlla að gera eitthvað flippað :oS Sjáum til hvort ég hafi kjark í að standa við það.
Helgin fer svo í 80 ára afmæli afa mín. Föstudagskvöld kvöldverður í Perlunni, laugardag fjölmenn standandi veisla í sal orkuveitunnar og sunnudag kaffiboð afkomendanna. Vííí þetta verður skemmtilegt :o)

í dag er ein vika í Búdapest og ég er að byrja að plana hvað fer með og svoleiðis. Ekki eins einfalt að fara með krakkakríli með sér.

Í kvöld kemur kærastinn hennar Þórdísar í mat til okkar ásamt tengdafjölskyldu ;o)

4.10.05

Ég er þreytt, Kári er búinn að vera eitthvað ófrískur síðustu daga og nætur. Hann byrjaði að skríða alvöru í gær. Loksins kominn alveg upp á 4 fætur, ótrúlega flottur. Hingað til hefur hann náð ótrúlegum hraða á magaskriðinu ;o)
Kári stækkar og þroskast mikið núna. Farinn að standa upp og setjast upp og brölta og tæta. Nú má sko ekki líta af honum eitt augnablik.

Það eru bara 9 dagar í Búdapest :oD