heidan.blogspot.com

30.9.05

Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér
og ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer.
En ég vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til mín
og leiði mig á endanum aftur til þín.


Þetta er texti eftir Meistara Megas og er í einu fallegasta lagi eftir hann að mínu mati.

Við Júlli vorum að skoða gamlar myndir og þó ekkert svo gamlar. Voru teknar fyrir 3 árum í brúðkaupi frænku Júlla.
Það er sko hægt að segja að maður sjái það á börnunum hvað tíminn líður.
Miðað við hvernig vikurnar þeysast áfram og við tekur helgi af helgi verður ekki svo langt í Jólin.
Ég er strax farin að plana smákökubakstur og Lúsíkattagerð.

Í dag eru bara 13 dagar þangað til við Júlli og Kári förum og heimsækjum vini okkar í Búdapest. :o)

25.9.05

Hver er flottastur?

22.9.05


You Belong in Rome


You're a big city girl with a small town heart
Which is why you're attracted to the romance of Rome
Strolling down picture perfect streets, cappuccino in hand
And gorgeous Italian men - could life get any better?

What City Do You Belong in? Take This Quiz :-)

Find the Love of Your Life
(and More Love Quizzes) at Your New Romance.




Ég kláraði að prjóna peysuna á Júlla í gærkvöldi og hún passar! :o) Bjóst alveg eins við því að þurfa að gera þriðju peysuna, þar sem ég nú að gera þetta alveg upp úr mér. Nú á ég bara eftir að ganga frá og setja í rennilás og hef ekki hugmynd hvernig maður gerir það... og mamma er í Svíþjóð og getur ekki hjálpað mér... og ég þarf að prjóna krílapeysu fyrir 7. október. Úff ég vil fá mömmu mína.

19.9.05

Ég er*ann... Hófí klukkaði mig...

Fyrst fimm gagnslausar upplýsingar um sjálfa mig:

1) Ég hef átt 19 ketti(með öllum kettlingum meðtöldum).
2) Uppáhaldsstaðurinn minn um þessar mundir er Culican.
3) Mér finnst mjög óþægilegt að fara í sturtu á morgnana.
4) Ég er kaffisjúk og get drukkið lúxuskaffi, sem er auðvitað best, jafnt sem kalt bankakaffi.
5) Mér finnst betra að vera í pilsi en buxum.

Ég fæ svo að klukka fimm til viðbótar... Ég býð eftirfarandi aðilum upp á að láta klukka sig (ef þeir vilja): Dagný, Björk, Cilla, Hulda, og Arndís

Við erum líklega að fara að eignast kettlinga bráðum :o)
Ég varð vitni að því í gær :oÞ
krílin litlu munu þá líklega koma kringum 20. nóvember, eða þegar við verðum úti í London á árshátíð. Þyrfti eiginlega að fá einhvern til að búa í íbúinni hjá Skottu meðan við verðum úti, ef þetta ætlar að verða þá.(einhverjir sjálfboðaliðar?)
Ætli við munum ekki fara að sjá á henni eftir 3-4 vikur. :o)
Annars fórum við í matarboð á laugardag. Það var vægast sagt geðveikur matur! Í forrétt fengum við andalifur og þurrskinku(?) frá Frakklandi og vá þetta var æði! Í aðalrétt var ekki verra á boðstólnum. Sjávarréttaofnréttur með nokkrum tegundum af fiski, risarækju, kræklingi og ýmsu öðru góðgæti.
Svo voru ostar og kex og síðast dísæt marengsterta.
Við fórum í ótrúlega skemmtilegan leik, svona getrauna/acionary.
Við hittum líka litlu Helenu Sirrý í fyrsta skiptið. Hún er svo pínulítil og sæt. Hún er 7 vikna og bara 3 kíló, því hún fæddist 6 vikum of snemma. En vá hvað hún er falleg :o)
Svolítið fyndið að pæla í því að þó hún sé búin að þyngjast um 50% frá því hún fæddist, hef ég aldrei átt svona lítið barn. Mín voru bæði meira en 4 kíló þegar þau fæddust!

14.9.05

Ég veit ekki hvað er í gangi með mig.
Þetta er í þriðja skiptið sem ég verð veik núna á stuttum tíma!
Kannski klára ég allar flensurnar fyrir Búdapest.
Það er líka eins gott.
Búdapest eftir 29 daga :o)

7.9.05

Farið hefur fé betra!

5.9.05

Á föstudaginn fyrir viku fórum við í bústað að Vogum á Mýrum. Þetta var alveg frábær dvöl. Við vorum hins vegar svo óheppin að Þórdís varð veik á föstudaginn og lá út af fram á þriðjudag. Ég sjálf fékk rosalega hálsbólgu og var slöpp. En við gátum slappað af og notið þess að vera netlaus og það var svo gott. Fórum oft í pottinn og gengum eitthvað um svæðið, sem minna en við hefðum gert ef allir hefðu verið frískir. Júlli reyndi eitthvað að veiða.

Ég prónaði peysu í bústaðnum, sem hafði verið ætluð á Júlla, en þegar ég var búin kom í ljós að hún er of lítil, svo ég ætla bara að eiga hana :o)

Er byrjuð á nýrri handa Júlla.

Um kvöldið á föstudeginum sem við komum heim fórum við svo á tónleika á kaplakrika með Franz Ferdinand. Mjög fínir tónleikar.
Á laugardaginn fórum við svo í bæinn, á Segafredo og smá rölt.
Í gær buðu Hólmfríður, Gunni og Márus okkur í brunch. Það var alveg frábært. Fengum m.a. æðislegan ís með súkkulaðisósu og jarðaberjum , algjörlega sykurlausan og nánast engin fita. Það fannst sko ekki :oP