heidan.blogspot.com

25.8.05

Í gær byrjaði litla stelpan mín í skóla. Úff þetta er ekki bara stór dagur í hennar lífi sko. Skrítið að hún sé að verða stór, þó ég hafi alveg vitað að hún ætti ekki eftir að vera lítil alltaf :o)
Hún var svo stolt þegar hún gekk í fyrsta skiptið í skólann.

Mynd var stolið af STIGUR. NET.

24.8.05

Það er kominn tími á að taka sig á, léttast, stinnast og komast í form.
Því hef ég ákveðið að eftir sumarbústarferðina ætla ég fara í átak. Ætla að missa heil 6 kíló fyrir Londonferðina í nóvember.
Ætla að byrja á danska og í leikfimi eftir viku, eða nánar tiltekið 5. september. Þá eru 11 vikur og gerir þetta 0,55 kíló á viku og það ætti nú ekki að vera mikið mál er það?


22.8.05

Ég er ekki beint dugleg að blogga þessa dagana. Fór í próf á föstudaginn og gekk ekki vel. Ég er enn að reyna að gera það upp við mig hvort ég eigi að fara í prófið í vor(og borga 50 þús kr skráningargjald) eða bíða með þetta þangað til næsta haust þegar við Júlli ætlum að vera úti í útlöndum að byrja í Masternámi(amk ég, Júlli ekki alveg ákveðinn hvort hann ætlar í skóla). Það verður líka nýr kennari næstu vorönn, svo seinni kosturinn hljómar spennandi :o)
Annars get ég ekki beðið eftir næsta föstudegi, því við fjölskyldan erum að fara í sumarbústað í viku. Afslöppun, pottur, lestur, róið út í eyjarnar í kring. Bústaðurinn er risastór, með risastóru landi, 1300 ha.


Vogur er um það bil 30 km frá Borgarnesi niður við sjó. Rúmstæði fyrir 8 manns og eitt barnarúm. Vogur er einbýlishús sem stendur á fögrum stað við sjávarsíðuna. Húsinu fylgir bátur. Sjónvarp, myndbandstæki, gasgrill , örbylgjuofn og útvarp með geislaspilara og barnastóll er í húsinu. Á veröndinni er heitur nuddpottur.