heidan.blogspot.com

25.7.05

Fín helgi að baki. Afmælið á föstudaginn var alveg frábært. Fékk meira að segja pakka sjálf :o) Afi og Guðrún gáfu okkur svona fjölnotatæki. Algjör snilld! Prentari, skanni og ljósritunarvél. Á eftir að prófa síðari 2 eiginleikana, en prentarinn virkar ótrúlega vel. :o)
Svo á laugardaginn var svo æðislegt veður. Vorum úti í garði allan daginn, Dísa að bursla í bala og við að sötra bjór og taka til og undirbúa afmælispartýið okkar. Það var alveg frábært. Grilluðum læri og pylsur og vorum með Sangríu, sem var bara alveg þokkaleg.
Töldum ca. 40 manns, með okkur. Vorum að djamma úti í garði til kl. 2 held ég...
Fengum fullt af fínum gjöfum, kaffikvörn og kaffibaunir, kaffi, súkkulaði, ég fékk dekurkrús, með baðbombum, andlitshreinsimauki, svampi og fleiru, við fengum bæði boli og svuntu og kokkahúfur :oD, blóm, ljósmyndabókina hans Ragnars Axlessonar... Takk allir :oD
Í gær fórum við Júlli svo niður að Gróttu og tókum myndir.
Búin að setja myndir inn frá partýinu og júní, júlí og í gær. Ótrúlega dugleg!

19.7.05

Mig langar út. Nenni ekki að hanga inni.
Á fimmtudaginn ætlum við Júlli að skella okkur á tónleikana hennar Emilíönu Torrini á Nasa. Ætlum líklega út að borða á undan. Úh ég hlakka ekkert smá til.
Svo förum við í þrítugsafmæli á föstudaginn og svo ætlum við Júlli að halda upp á afmælin okkar á laugardaginn.
Þá á ég bara eftir að plana 2 kvöld í vikunni og það verður gert hér með...
Í kvöld verður reiknuð stærðfræði. Á morgun verður glápt á sjónvarp.
Ég er alveg pottþétt að það var eitthvað plan fyrir sunnudaginn....

15.7.05

Ohh það eru bara 4 klukkutímar í helgina. Vonandi samt ekki 4 klukkutímar af netskoðun, búin að vera að því síðustu 4 klukkutímana.
Hélt ég yrði hérna "ein" í dag. Sem betur fer mætti Bogga rétt áðan, eftir eitthvað skrall í gærkvöldi. Hulda byrjaði helgina sína snemma og fór austur í gær.
Ég var annars að tékka hvað ég ætti mikið sumarfrí inni. 3,5 daga! Maður safnar víst ekki sumarfríi í fæðingarorlofi. Mér finnst það fúlt. Það er ekki eins og maður sé eitthvað í fríi...

11.7.05

Ótrúlega skemmtileg helgi að baki.

Við verkfræðivinkonurnar hófum helgina á að fara í hádeginu á Oliver. Þar var tilkynnt að von væri á enn einu krílinu, en 7. júlí eignaðist Guðrún tvo yndislega 11 marka drengi. Inga Rut ætlar að koma með næsta um það leyti sem Kári verður eins árs.
Um kvöldið fór ég svo til Betu og sá fínu íbúðina hennar við Laugarveginn. Við röltum svo á Oliver, við Beta, Cilla og Ólöf sem var að koma frá USA. Þar var sko búið að skipuleggja smá óvæntupartý fyrir Dagnýju afmælisbarn, sem er orðin 25 ára og er svo að fara til Svíþjóðar í haust. Við Júlli fórum svo heim til krílanna okkar. Á laugardaginn fórum við svo með Óttari og Júlíusi krúsídúllu í Töfragarðinn í Stokkseyri. Rosalega gaman :o)
Um kvöldið fórum við svo í afmælis/innflutningspartý til Hörpu, sem er orðin 26 ára. Íbúðin hennar er bara sú flottasta held ég. Hún keypti hana fyrir löngu á 11 miljónir, gerði hana upp fyrir 2 miljónir og núna er íbúðin metin á 18 miljónir. Hún er alveg ótrúlega smekkleg og smart og á meiriháttar stað, Brávallagötu.
Í partýinu prófaði ég Singstar og ég sökkaði!!!
Reyndar kunni ég ekki lögin og ruglaðist alveg hvenær ég átti að syngja. Svo var ég búin að fá mér smá í glas ;o) Það hefur sjaldan gert fólk lagvissara, hehe.

7.7.05

Ég var að keyra heim úr vinnunni í gær og heyrði kunnuglega rödd í útvarpinu. Viðtal við mann frá Sorpu. Jebb það var fyrrum umhverfisverkfræðikennarinn minn. Að heyra í honum þarna minnti mig á hvað hann er "spes". Hann er smámæltur og líklega litblindur, amk af fötunum og litasamsetningu að dæma því hann var alltaf eins og æla til fara. Svo er hann líklega lesblindur líka, eða afleitur í stafsetningu, nema hvort tveggja sé. Við sáum ekki eina glæru þar sem var ekki amk ein stafsetningar eða innsláttar/prentvilla.

Annars erum við að fara að láta fella tré í garðinum okkar. Þetta er alveg risastórt reynitré, sem skyggir á garðinn okkar. Það er örugglega meira en 50 ára gamalt og stofninn ótrúlega breiður. Það komu tveir strákar til okkar í gær og buðu í verkið. Sögðu 30 þúsund fyrir að fjarlægja tréið eða 20 þúsund ef þeir taka allar greinar og skilja stoninn eftir, sem gæti alveg komið ágætlega út. Úff þetta er örugglega sanngjarnt, en mikill peningur engu að síður.

Á þriðjudagskvöldið fór ég í bíó með Betu og Dagnýju. Fórum á Mr and mrs Smith. Mjög fín mynd og fallegt fólk :o) Svo fórum við á Oliver eftir bíóið. Ég held ég hafi aldrei borgað meira fyrir rauðvínsglas, þetta kennir manni að spyrja hvað svona kostar áður en maður pantar. Glasið kostaði 850, eða eins og 3 flöskur í Danmörku eins og Inga Rut benti mér á.
Samt var alveg troðið þarna inni... á þriðjudegi!

4.7.05

Litli snúðurinn minn er að verða 6 mánaða og farinn að sitja sjálfur og leika sér. Vá hvað tíminn líður!!!

1.7.05

Jæja Heiða bara byrjuð að vinna eins og asni og búin í orlofinu. Ég er búin að vera í burtu í hálft ár og mér finnst ég rétt nýhætt að vinna. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt.
Samt finn ég að ég hafi verið í burtu þegar ég þarf að hanna einhvern bita og klóra mér í höfðinu yfir einingunum. Hmmm....
Núna eru strákarnir mínir bara heima að hafa það gott og skvísan mín fer í frí 15. júlí. Þá þarf ég sem sagt að dröslast ein á fætur meðan hinir kúra lengur. Eins og ég hef reyndar gert síðustu 6 mánuði, svo hvað er ég að kvarta, ehehe.
En þó ég nenni varla þessu bloggi lengur ætla ég nú að reyna að halda þessu eitthvað áfram.

Góða helgi og farið varlega í umferðinni.