heidan.blogspot.com

27.4.05

Jæja blogga, hvað er nú það?
Við Kári döfnum vel. Við erum búin að vera að stússast smá í garðinum okkar. Kári situr í stólnum sínum og mamma gramsar í beðum :o)
Ekkert smá gaman að stússast í sínum eigin garði. Erum búin að gera plan hvað þarf að gera í sumar. Hver hefði trúað því að við ættum eftir að eiga heilt hús?
Æðislega gaman. Við getum meira að segja sótt um styrk til að gera húsið fínna. Svo var ég að sjá hús á sölu, svipað að stærð, ekki með bílskúr og ekki tekið í geng að innan og það var sett á það 33,6 milljónir. Þannig að við höfum verið rosalega heppin.
Eins og Hulda og Manni ætlum við Júlli líka til London. Ég er ekkert smá spennt :oD
Svo erum við auðvitað líka að fara til Búdapest í haust.

15.4.05

Litla ballerína mín dansaði í Borgarleikhúsinu á þriðjudaginn. :oD

1.4.05

Mamma og pabbi eiga afmæli í dag. Alltaf jafn gaman að segja frá því. Fæ yfirleitt svona svar: Bæði!!? 1. apríl!!? :o)
Það er meira að segja hægt að sjá þau í afmælisdálknum í Fréttablaðinu, á síðu 20 held ég.
En annars kom Inga Rut til mín í heimsókn í fyrsta skipti í nýja húsið og að sjá Kára, sem mér skildist að væri aðeins stærri en frænka hennar sem fæddist 10. janúar eða þremur dögum eftir Kára. Hann er orðinn rosa stór og stinnur :o)
Annars er ég búin að heyra um 3 nýjar óléttur bara á síðustu viku, allar með haustkríli. Vinkona mín úr grunnskóla, vinapar, sem býr í Dk og Begga verkfræðiskvísa. Svo eru nokkar komnar svolítið lengra og eiga að eiga í sumar. Allir þessir ungar verða á sama skólaári og Kári klári :o)