heidan.blogspot.com

29.3.05

Gleðilega páska krúttin mín (k)

Ég fór til afa um helgina. Hann sýndi okkur myndband sem var tekið 12.apríl 1993. Ég var sem sagt 13 ára(að verða 14) og var nýbúin að fermast. Mín sko alveg að farast úr pæjuskap og smá gelgju. Sem betur fer fannst Júlla ég bara vera sæt og ég hafi verið akkúrat týpan sem hann hefði orðir skotinn í á þessum aldri ;o) En rosalega er gaman að sjá þetta. Svo sá ég líka stutt brot frá 1987 held ég, eða þegar kisan mín hún Yrja var nýbúin að eignast litla kettlinga og ég var að segja hvað þeir hétu :o)
Í dag gerðist ég svo mikill massi að ég fór á Vöku og náði mér í hliðarspegil á bílinn, toppgrind og æðislega bleika gluggasköfu(læddist stelpan fram í mér, híhí). Við systir mín fórum sem sagt á Vöku og vorum ekki beint í stíl við gaurana þarna. Ég í fína flauelsjakkanum mínum og stuttu gallapilsi og systir mín í gervileðurjakka. Hefði sko viljað vera fluga á vegg ;o)

22.3.05

21.3.05

Síðustu helgi fórum við í sumarbústað í Skorradalnum. Ferðin byrjaði ekki vel. Fengum vitlausan lykil, að hinum bústaðnum s.s., jæja það hefði kannski ekki skipt máli nema það að þegar við voum búin að skrúfa frá vatninu fór bara allt á flot. Vatnspípa hafði sprungið á tveimur stöðum. Við, sem vorum frekar seint á ferðinni, þurftum að fara að þurrka upp allt vatnið og tæma leiðslur, sem var ekki mjög skemmtilegt þegar tilgangur ferðarinnar hafði verið að slaka á. Jæja við náðum sambandi við einhvern frá sumarbústaðanefndinni og hann sagði okkur hvar við gætum fundið varalykil að hinum bústaðnum. Þannig að þetta endaði nú allt mjög vel.
Hólmfríður bauð mér með sér í badminton í vikunni. Þetta verð ég sko bara að gera oftar. Vonandi forfallast hinar vinkonur hennar sem oftast ;o)
Er kannski einhver sem vill koma með mér í badminton kannski einu sinni í viku eða á tveggja vikna fresti? Maður gleymir sér alveg :o)
Við Júlli fórum svo um þessa helgi á árshátíð Reiknistofu bankanna og það var alveg meiriháttar. Ég hélt ég gæti ekkert skemmt mér þar sem Kári var í pössun í fyrsta sinn. Amk svona lengi. En ég dansaði af mér rassgatið og skemmti mér alveg frábærlega.
Kári var auðvitað bara eins og engill á meðan. Samt kom rosaleg skeifa þegar við komum að sækja hann. Hann mundi allt í einu eftir því að hann var ekki búin að sjá mömmu sína soldið lengi.
Átakið sem ég er búin að vera að byrja á í viku hefur ekki alveg gengið upp. Búið að vera allt of mikið af veislumat og sukkmat síðustu daga. Fengum gesti í mat í síðustu viku, þar sem étinn var slatti af hamborgurum og drukkið soldið mikill bjór og hvítvín. Svo árshátíðin og svo fórum við í mat til tengdó í gær. Fengum paellu, sem var bara of gott.
Þannig að nú verður bara tekin átaksvika dauðans áður en maður gúffar í sig Páskamatnum.

8.3.05

Ótrúlegt hvað tíminn líður. Mér finnst alltaf vera að koma helgi og svo líður helgin svo hratt að ég hlýt að verða fimmtug áður en ég veit af!!!
Næstu helgi ætlum við í sumarbústað og ég hlakka ekkert smá til. Loksins gerir maður ekkert heila helgi! Það er alltaf svo mikið prógram að maður nær varla að slaka á.
Annars var þessi helgi mjög fín. Fór á föstudaginn á Toscu og það var alveg frábært. Var víst ekki alveg jafn skemmtilegt heima á meðan, sumir söknuðu mömmu sinnar held ég ;o)
Svo fór ég og horfði á litlu prinsessuna mína í ballet á laugardaginn. Hún er svo lítil, lang minnst í hópnum. Mér sem finnst hún alltaf svo stór þegar hún er hérna heima :o)
Svo löbbuðum við aðeins í bæinn og borðuðum æðislegan fisk og buðum pabba í mat. Mamma var á einhverju kóræfingarsumarbústaðadjammi. Svo um kvöldið fengum við okkur fullt af rauðvíni og ég varð bara soldið hífuð. Það hefur ekki gerst síðan fyrir ca. ári síðan. :o)
Á sunnudaginn fórum við á bókamarkaðinn í Perlunni og okkur tókst að eyða 10 þúsund kalli þar. Ekki mjög erfitt.
Jæja blabla ég fer örugglega að hætta þessu blogrugli. Maður hefur ekkert merkilegt að segja. Annars fyrir þá sem ekki vita er Kári minn kominn með heimasíðu á barnalandi. Maður verður nú að vera eins og allir hinir :o) Hann er bara undir nafninu Kári og er sá eini.

2.3.05

Arndís sæta á afmæli í dag og við verkfræðiskvísurnar fórum í tilefni dagsins í lunch og fengum okkur grænmeti. Fórum á stað sem ég hef lengi ætlað að prófa, heitir Garðurinn og er efst á Klapparstíg. Ég fékk mér spínatsúpu, sem var æði!
Ég var komin í svo mikið grænmetisstuð að ég ákvað að búa til hollustumat og eldaði grænmetislasagne. Ekkert smá gott, slurk...