heidan.blogspot.com

21.2.05

Maður ætti kannski að skrifa eitthvað hérna til tilbreytingar :o)
Það er bara þannig að þegar maður er heima allan daginn, alla daga, getur eiginlega ekki gerst neitt mjög bloggvænlegt.
Ég get auðvitað skrifað á hverjum degi hvað litli snúðurinn minn er fallegur, en hver mundi nenna að lesa það ;o)
Annars eru myndirnar mínar alveg nóg og ég er bara ágætlega dugleg að setja inn nýjar.

Smá sýnishorn :o)

3.2.05

Litli Kári minn er 3ja vikna í dag :o)

Þessi var tekin í gær.

2.2.05

Jæja "litli" strákurinn minn var vigtaður áðan og hann er búinn að þyngjast um hálft kíló á einni viku. Nú er ég ekki búin að vigta mig enn þá, en vonandi tekur hann kílóin mín bara ;o) Hann er orðinn 5050g og er bara 20 daga gamall. Búinn að þyngjast um 920g frá því hann fæddist.
Þeir sem eiga eftir að kíkja í heimsókn verða nú að fara að drífa sig, ef hann á að vera lítill enn þá :oD