heidan.blogspot.com

24.1.05

Ein mynd af krúttinu mínu :o)

Þetta ár á örugglega eftir að verða eitt það viðburðaríkasta til þessa. Við urðum 4ra manna fjölskylda. Svo ætlum við Júlli að útskrifast, Júlli núna í febrúar og ég í vor. Svo fer stóra stelpan okkar í skóla í haust.
Síðasta ár var nú alveg frekar viðburðaríkt. Keyptum hús og fluttum, ég byrjaði í frábærri vinnu og hætti svona eiginlega í skóla. Hef amk ekki verið í skóla síðan síðasta vor, fyrir utan próf.

Í dag fór Kári út í vagn í fyrsta skipti. Það hefur nú verið talað um að krílin eigi að vera orðin 4 kíló eða 4ra vikna. En hann var nú 4,13 kíló þegar hann fæddist og það var svo hlýtt að hann fékk að fara aðeins út. Hann svaf svo vel :o)
Aldrei hef ég séð svona fallegt barn.. fyrir utan eitt sem fæddist fyrir 5 árum. Ég er nú líka alveg hlutlæg í þessu máli ;o)

19.1.05

Ótrúlegt hvað maður er heppinn... amk hingað til hefur Kári litli sofið allar nætur og grætur nánast aldrei. Smá svona væl ef hann er svangur. Vonandi verður hann áfram svona yndislegur.
Dagný kíkti til okkar í gær með æðislega fallega peysu og húfu á Kára. Soldið stór, en hann stækkar svo hratt að hann verður fljótur að passa í hana :o)


14.1.05

Litli prinsinn minn kom úr bumbunni í gær 13.janúar kl.8.20.
Alveg fullkominn.
Takk allir fyrir kveðjurnar :o)


Kári litli nokkurra klukkustunda gamall...

12.1.05

Nei það er ekkert að gerast.
Merkilegt að fólk skuli spyrja hvort eitthvað sé að gerast. Ef það væri eitthvað að gerast væri ég varla í aðstöðu til þess að svara því og Júlli væri ekki á MSN-inu ;o)
En litli gaurinn okkar ætlar greinilega að kúra í hlýjunni eins lengi og hann kemst upp með. Kannski er hann að bíða eftir að pabbi hans sé búinn að klára og skila lokaverkefninu.
Í dag er ég komin viku yfir áætlaðan dag og það er nákvæmlega jafn lengi og ég gekk með Þórdísi. Vona bara að hann fitni ekki of mikið svo ég komi honum út!
En ég læt vita um leið og eitthvað gerist, eða þegar eitthvað hefur gerst.
Ps. Ætla ekki að vera á MSN-inu þangað til :o)

8.1.05

Jæja litli gaur er ennþá í bumbunni og ætlar greinilega að láta bíða eftir sér...

3.1.05

Oj þetta veður er alveg klikkað. Ég hélt í alvöru að ég kæmist hvorki fram né aftur þegar ég var að ganga úti áðan. Reyndar var það þannig að annað hvort mjakaðist ég mjög hægt eða var á svelli og með vindinn í bakið.
Já og svo er litli kútur enn í bumbunni, en ég á nú von á að hann komi í kvöld, nótt eða á morgun... miðað við líðan síðustu klukkutíma og daga. :o)
En ég er nú sett eftir 2 daga og það væri nú algjör snilld ef ég myndi nú hitta á réttan dag.
Amk verð ég að vera búin 6. fyrir Ingu og 8. fyrir Stebba og Sóleyju.

Ég ætla ekki að skrifa annál eins og virðist vera í týsku núna.
Ef þið viljið rifja upp árið hjá mér eru linkar hérna til hægri ;o)