heidan.blogspot.com

30.12.04

Gleðileg jól :o)
Það er svosem ekkert að frétta. Litli kúlubúinn er enn þá á sínum stað og ég er bara heima að hafa það eins gott og hægt er, svona þegar maður er eins og barbapabbi.
Annars eru jólin búin að vera frábær og ég vildi bara að þau hefðu verið lengri, því Júlli er bara að vinna og skilur mig bara eftir í jóladraslinu ;o)
Svo eru búin að vera jólaboð bara næstum alla dagana. Þorláksmessu hjá ömmu hans Júlla, svo vorum við heima á aðfangadag, mamma og pabbi komu til okkar á jóladag, vorum hjá systur minni 26., hjá tengdó 27., hjá frænku hans Júlla 28. en í gær vorum við bara heima og ég hitti saumóstelpurnar um kvöldið.
Ég er búin að mjaka mér einu skrefi nær útskrift og er mjög hamingjusöm með það. Gerði ekki beint ráð fyrir að ég myndi hafa það. Þannig að það er bara Stærðfræðigreining 4 eftir jól og þá er þetta búið í bili. Ekki það að það skipti einhverju stórmáli...

Eitt í lokin...
Eru ekki allir búnir að hringja í 907 2020 til að gefa 1000 kr til að styrkja hálparstarfið í Asíu?

22.12.04



Í dag eru bara 2 dagar til jóla og 2 vikur í litla gaurinn okkar :o)

Vá hvað tíminn líður.
Ég er bara komin á tíma! Allt er tilbúið fyrir litla gutta til að koma í heiminn og við hlökkum auðvitað hrikalega mikið til :oD

19.12.04

Ahhh gott að vera komin í jólafrí. Það er reyndar allt of mikið að gera fyrir jól og allt of lítill tími. Júlli verður líka að vinna þannig að ég vera líklega á haus næstu daga.
Fór í Rúmfatalagerinn og keypti ýmislegt sniðugt, eins og piparkökubox, samfellur, mjúkt flísteppi o.fl. Svo fór ég í Hagkaup og fékk fullt af smakki og heillaðist af Jóa Fel ísnum. Eins og sá maður ef farinn að fara í taugarnar á mér :oS
Nú þarf maður bara að finna fallegt jólatré. Vona bara að kisa litla geti látið það í friði.

13.12.04

Jæja þá er mín bara komin í "frí". Sko eða þannig.
Ætla að byrja á því að læra alla vikuna straumfræði og mæta svo bara ekki meira í vinnuna fyrr en næsta sumar. Ótrúlega furðuleg tilfinning.
Mætti bara í dag til að pakka saman dótinu mínu því það kemur einhver strákur úr námi um áramótin og sest í mitt sæti.
Það er líka frekar skrítið að hugsa til þess að það eru ekki nema rétt rúmlega 3 vikur í settan dag hjá mér og á miðvikudaginn, ekki á morgun heldu hinn, er litli gaur ekki lengur fyrirburi ef hann ákveður að mæta á svæðið snemma.
En þar sem ég er svo heppin að vera ekki með neina af þessum leiðinlegu kvillum á meðgöngunni, eða ekki mikið, get ég bara reynt að hvíla mig og undirbúa í rólegheitunum eftir prófið :o)

10.12.04

Velkomin í nöldurhornið...
Í hverju á ég að vera í kvöld á jólaglögginu/hlaðborðinu?
Bogga var að hafa einhverjar áhyggjur af því að eiga ekkert að vera í, hún ætti að prófa að vera með bumbuna mína svona eins og á einu djammi ;o)
En það góða við þetta er, eins og fyrrnefnd benti mér á, að mér verður fyrirgefið þó ég komi ekki í nýjum og flottum fötum í hvert partý :o)
Annars verður þetta helgIN. Ef ég næ ekki að vera dugleg þessa helgi og vikuna að læra, held ég að þetta próf verði ekki mitt síðasta í þessu fagi. Fólk er farið að segja við mig hérna í vinnunni, ert þú ennþá ólétt?? Já ég er búin að vera mjög lengi ólétt, húffpúff.
Það er orðið svo jólalegt hérna í vinnunni að mig langar svona varla að hætta alveg strax. Í hádeginu í dag var búið að skreyta allt og líka jólatréð. Svo var hangikjöt með öllu og ostakökur í eftirrétt og meira að segja gos með matnum :oP
Svo kom kór, tveir einsöngvarar og undirleikarar og sungu meðan við borðuðum.

9.12.04

Á morgun er bara vika í prófið mitt og það er svo erfitt að byrja. Í gærkvöldi ætlaði ég að vera smá dugleg, en mér varð bara strax illt í bakinu og mér leið eins og rifbeinin væru hreinlega að þrýstar út. Það er mjög erfitt að sitja við borð núna og reyna að skrifa. Hvernig verður þetta þá í 3ja tíma prófi?

6.12.04

Úff ég er orðin svo mikið hlass!
Mig langar nú soldið til að þetta óléttuvesen fari að klárast. Nú má barnið fara að koma án þess að það verði eitthvað vesen. Ágætt að eiga bara fyrir jól :o)
Jæja en það er sama hvað mér finnst, hann kemur bara þegar hann er tilbúinn.
Við erum alla vega búin að afhenda íbúðina á þórsgötu og nú er bara vandamálið að finna allt draslið í öllum þessum pokum og kössum sem eru ÚT UM ALLT. Sérstaklega það sem mann vantar, það er örugglega úti í bílskúr. Svona er að vera ekki alveg búinn að pakka þegar fólk byrjar að hjálpa manni að flytja dótið á milli. Um helgina var öllu dótinu, sem ég hélt nú að væri miklu minna, bara hrúað öllu í sama pokann. Það voru handklæði, eldhúsdót og bara alls konar drasl saman í pokum. Ég held meira að segja að tómar fernur hafi slæðst með einhvers staðar. Kæmi amk ekki á óvart.
Nú langar mig bara heim að sofa og vakna svo á eftir og þá er bara komin fallegur jólasnjór og baka piparkökur og skreyta með fallegu dóttur minni :o)


3.12.04

Þá er maður bara fluttur!
Vá ég hefði ekki trúað hvað er gott að búa þarna!
Við ætluðum að byrja aðeins á miðvikudagskvöldinu, byrjuðum sko kl. 8 um kvöldið. Það voru bara allir svo duglegir og ég var í íbúðinni á Þórsgötunni að láta fólk fá eitthvað til að flytja og var alveg á fullu. Við hættum svo ekki fyrr en held ég 12 og þá var ég alveg búin. Mér var bókstaflega illt alls staðar og ég fór beint í bað til að slaka á.
Það má eiginlega segja að ég hafi verið með áunnin veikindi í gær. Bara gat varla gengið.
En núna þegar maður er búinn að jafna sig og hlutirnir(amk eitthvað af þeim) komnir á sinn stað, er þetta allt frábært.
Smá niðurtaling í tilefni af því að það er föstudagur... :o)

Í dag eru:
14 dagar í próf
21 dagur til jóla
33 dagar í litla gaurinn