heidan.blogspot.com

30.11.04

Jæja þá fer nú að styttast í flutningana og það er bara eiginlega allt klárt.
Í gær skrifuðum við undir kaupsamning á Kárastíg og margt fleira(ótrúlegt hvað maður þarf að skrifa oft nafnið sitt). Á föstudaginn þórsgötu. Á morgun fáum við svo afhent. Frekar ópraktískt reyndar að fá afhent á miðvikudegi. Svo seinni partinn sama dag er jólaföndur hérna í vinnunni. Ætlum að reyna að kíkja aðeins.
Við keyptum barnavagn í gær, þannig að þá er bara eiginlega allt tilbúið fyrir litla krílið, sem ætlar að láta sjá sig eftir mánuð. Það á reyndar eftir að þvo föt og svoleiðis.
Á nokkur litla vöggu til að lána okkur fyrstu mánuðina?

26.11.04

Já það er rétt!
Þessi sæta kisa er nýjasti fjölskyldumeðlimurinn :o)
Hún er 8 vikna skvísa og er svona að venjast okkur, pínu stressuð enn þá.
En við fengum ekki bara kisu í gær, heldur bauð strákurinn sem er að selja okkur húsið að kaupa ísskápinn, sem passar svo vel inn í eldhúsið, þurrkarann og rosalega fínan sófa. Svo gaf hann okkur bara gardínurnar :o)
Svo í dag skrifum við loksins undir kaupsamninginn af Þórsgötunni og fáum þ.a.l. pening og á mánudaginn klárast svo samningurinn fyrir Kárastíg.
Við fórum sem sagt á Kárastíginn í gær að skoða það sem hann ætlaði að bjóða okkur að kaupa og vá mér finnst húsið okkar bara enn fallegra en mig minnti og eiginlega stærra. Æi hvað þetta verður yndislegt. Ætli fjöskyldan eigi ekki líka eftir að slást um baðið ;o)
Ég hlakka ekkert smá til að búa til smákökuilm í nýja húsinu!

25.11.04

Litla Snúlla okkar :o)

24.11.04

Það er að koma helgi, amk miðað við það að mér finnst eins og það hafi verið sunnudagur í gær!
Það gengur eitthvað rólega með þessi lán og það. Við höfum ekki enn þá skrifað undir kaupsamning út af húsinu okkar. Alltaf eitthvað vesen og núna getum við þó andað rólega því það er ekki okkar megin. Hver gleymir bara að taka veð af húsinu sem hann er að fara að selja?
Svo er hitt heldur ekki komið, þó það sé nú miklu styttra síðan það fór af stað. Hún sem er að kaupa af okkur bara fattaði ekki að brunabótamatið var svona lágt, þó er það ekki lágt miðað við hús í 101! Hún hringdi þó amk um helgina og fannst voða leiðinlegt hvað þetta tæki langan tíma.
Við (eða ég) erum byrjuð að setja smá í kassa. Júlli vill rumpa þessu af í einum grænum um helgina, en þannig virka víst ekki kasóléttar konur. Þær vilja gera pínu í einu og voða rólega og hvíla sig á 10 mínútna fresti.
En amk getur nú ekkert breytt því að eftir viku nákvæmlega flytjum við í nýja húsið.
Ætli ísskápurinn og rúmin verði ekki flutt fyrst :o)

22.11.04

Mánudagur til mæðu einu sinni enn....
Ég var sko ekki sú eina í vinnunni í dag sem var þreytt og pirruð og gerði afskaplega lítið af viti. Erfitt að fara á fætur og erfitt að hanga í vinnunni.
Ég fékk ekki einu sinni kisuna sem var búið að lofa mér. Á föstudaginn hringdi ég í konu sem var að auglýsa lítinn kisuling og hún sagðist ætla að koma með hann til mín á laugardaginn. Svo hringdi hún bara um kvöldið og sagði að því miður væri strákurinn hennar búinn að gefa litlu kisuna.
Við Þórdís vorum frekar leiðar :o(
En jæja það hlýtur að vera einhvers staðar lítil kisustelpa sem vill vera hjá okkur.
Við Júlli skelltum okkur á Bridget Jones á laugardagskvöldið og hún var bara æði. Auðvitað ekki eins og fyrri, en stóðst alveg mínar væntingar og ekki leiðinlegt að horfa á Colin Firth í 2 tíma...
Í dag reddaði ég líka ógeðslega fínum ungbarnabílstól. Nú er þetta allra nauðsynlegasta að verða tilbúið. Þegar við erum flutt, fer ég að þvo barnafötin og svona, enda ekki nema 6 vikur í áætlaðan fæðingardag :oS
Kona í vinnunni minni var líka að segja að það væri líklegra að konur sem ættu að eiga í kringum jól og áramót ættu aðeins fyrir tímann. En ég geri nú ekkert ráð fyrir því. Ætla bara að hitta á 05.01.05! :oD

Í dag eru...
9 dagar í nýja húsið okkar
25 dagar í prófið
32 dagar til jóla
44 dagar í litla strákinn okkar

18.11.04

Já það er búið að benda mér pent að ég sé afspyrnu lélegur bloggari.
Ég vissi það nú samt alveg fyrir. Maður nennir þessu bara ekki lengur.
Það helsta í fréttum er að ég er víst búin að senda eitthvað asnalegt sms invitaion til bara allra sem ég þekki held ég. Ég ætla að vona að sem allra fæstir samþykki þetta. Ég veit sko ekkert hvað þetta er, en ég var eitthvað að prófa að athuga hvort ég gæti sent sms og nei þessi tækni er víst ekki til staðar hér á landi. Jæja en amk er pabbi búin að fá svona frá mér og ég hef ekki hugmynd um hvernig. Júlli fékk á öll e-mailin sín o.s.frv.
Mæli semsagt ekki með þessu.
Svo fórum við með skvísuna í 5 ára skoðun í dag og hún stóðst hana auðvitað með sóma. Eitthvað annað má segja um bílinn, sem fór líka í skoðun um daginn(ætli það sé ekki frekar 15 ára skoðun). Við bjuggumst við að fá endurskoðunarmiða en fengum miða sem stendur á "óökuhæfur!" Það sprakk víst einhver bremsuleiðsla í skoðuninni og það á víst eftir að kosta einhver ósköp. Eitthvað sem er leiðinlegast að eyða í!

12.11.04

Veiveivei!!
Við erum búin að skrifa undir :o)
Alveg stórkostleg tilfinning!

Svo er litli kútur búin að koma sér vel fyrir í höfuðstöðu og þrýstir sér niður, með tilheyrandi þægindum fyrir mömmuna ;o)
En það er nú skárra en ef hann hefði farið að fara öfugur út.
Kannski kemur hann bara á þessu ári :o)
Ég hefði barasta ekkert á móti því að fá lítinn jólaálf.

Mamma fín á leiðinni á árshátíð :o)

11.11.04

Vá þetta var sko ekki mikið mál.
Við erum svo að segja bara búin að selja :o)
Héldum kannski að þetta tæki einhvern smá tíma, en nei nei.
Í dag komu tvær konur að skoða og leist voða vel á báðum...
Sú fyrri var sko ekki að bíða neitt, gerði bara tilboð um leið og það bara ásett verð.
Þannig að ef hin verður ekki búin að gera hærra tilboð fyrir 2 á morgun erum við bara laus.
Tilboðið var eins og talað úr okkar hjörtum, ásett verð og afhending 5 dögum eftir að við fáum húsið okkar fína :o)
Akkúrat tími til að flytja út og skúra.
Ég segi bara jibbíjei!!! :oD

10.11.04

Í dag eru...
21 dagar í nýja húsið okkar
37 dagar í prófið
44 dagar til jóla
56 dagar í litla strákinn okkar

7.11.04

Ég sit hérna ein á ca. 120 manna vinnustað, sem er soldið skrítið. Líður soldið eins og Palla var ein í heiminum...
Reyndar kannski ekki svo skrítið, því að í gær var árshátíð og flestir örugglega að sofa úr sér djammið :o)
Þetta var snilldarárshátíð, haldin á Nordica Hótel. Fyrst var partý á undan hjá einni sem er að vinna með mér, svo fórum við í fordrykk kl. 7. Svo byrjaði stuðið. Við fengum æðislegan forrétt, engifermarineraðan humar, hörpuskel og laxasneiðar í ristuðum sesamfræjum.
Svo komu Stebbi og Eyfi og spiluðu nokkur lög alveg óvænt. Alveg frábært!!
Svo var aðalréttur, lambavöðvi með einhverju góðu.
Síðan voru skemmtiatriði og fleira og svo æðislegur eftirréttur.
Bogomil Font spilaði svo á ballinu á eftir.

1.11.04

Vúhú !!!
Nú er búið að koma og skoða hjá okkur og taka myndir af íbúðinni.
Á morgun fáum við svo að vita hvað við gætum mögulega fengið mikið fyrir hana.
Ég verð nú að segja að ég er ekkert smá spennt og með smá kíkt í mallanum. :o)
Nú fer örugglega að verða nóg að gera hjá okkur að taka á móti fólki.