heidan.blogspot.com

28.10.04

Mig langar að vera veik.
Júlla fannst það nú ekki sniðug ósk :oS
Nei svona í alvöru, ég hefði svo gott af því að liggja í rúminu í einn dag eða tvo og gera ekki neitt.
Ekki eitthvað alvarlega veik, bara svona þannig að ég geti ekki farið í vinnuna eða stússast eitthvað.
Samt væri nú ekki góður tími núna, þar sem ég þarf að fara að undirbúa afmælið hennar Dísu, þrífa og svoleiðis bæði fyrir það og til að fasteignasalinn geti einhvern tímann komið, metið íbúðina og tekið myndir hjá okkur.
Svo er næsta vika ekki góð heldur því ég stefni nú á að halda saumaklúbb á miðvikudaginn, fara á Nýdönsk&Sinfó á fimmtudaginn og árshátíð Hönnunar á laugardaginn, sem ég hlakka ógeðslega til að fara á. Við stelpurnar í vinnunni erum sko búnar að tala um hana endalaust :o) Strákarnir eru búnir að vera að laumupúkast eitthvað, en ég komst nú ekki hjá því að heyra að þeir væru að plana eitthvað skemmtilegt og þeir hlógu alveg svakalega. Þannig að maður bara bíður spenntur.
En þarnæsta vika væri tilvalin í að vera smá rúmliggjandi ;o)

27.10.04

Í dag eru...
4 dagar í Dísu afmæli
10 dagar í Árshátíð
35 dagar í nýja húsið okkar
58 dagar til jóla
70 dagar í litla strákinn okkar

26.10.04

Jæja þá er maður bara kominn heim í hversdagsleikann. Ég verð nú að segja að það er bara ansi gott. Ekki mikil slökun í gangi, heldur var Strikið og Fields arkað eins og við værum vitleysingar.
Gaman að hitta allt fólkið sem maður er ekki búinn að sjá svo lengi.
Yndislegu vinir okkar, Sóley og Stebbi dekruðu okkur í botn, lánuðu okkur rúmið sitt og elduðu æðilegan mat handa okkur.
Takk kærlega fyrir okkur :o)
Svo var auðvitað komið með aðeins meira heim en farið var með út ;o)
En næst á dagská er að halda afmæli fyrir prinsessuna mína, sem fær prinsessukjól á afmælinu sínu, bannað að kjafta frá. :o)

20.10.04

Jei á morgun förum við Kóngsins Köbenhavn.
Ég er búin að plana verkfræðivinkonudate á sunnudaginn, en annað er ekki planað svo við vitum.
Ætla að reyna að kaupa einhverjar jólagjafir og kannski smá barnaföt/dót, sem ég hef ekki fengið mig til að byrja á enn þá.
Annars gæti ég alveg trúað að mesta orkan fari í að finna eitthvað handa stóru dekurdósinni minni, sem verður 5 ára eftir nokkra daga.
Spurning hvort babyborn fái ekki líka pakka frá mér á afmælinu.
Eins gott að drífa sig að eyða áður en maður þarf að fara að eyða í eitthvað skynsamlegt í sambandi við húsið okkar. Annars verður það örugglega gert með bros á vör :o)

18.10.04

Í dag eru...
3 dagar í Köbenferð
13 dagar í Dísu afmæli
18 dagar í Árshátíð
44 dagar í nýja húsið okkar
67 dagar til jóla
79 dagar í litla strákinn okkar

17.10.04

Nýja húsið okkar :o)

6.10.04

Þessi linkur er fyrir Cillu og alla þá sem eru kisusjúkir :o)
Mæli með því að skoða myndirnar þá sérstaklega þessar.

Úhh ég er mikil hetja. Fór til tannlæknis og hann boraði, en ég var ekki deyfð.
Þetta var auðvitað ógeðslega vont. Samt hef ég sjaldan verið jafn fljót hjá tannlækni.
Það tekur svo langan tíma að láta deyfinguna virka, þannig að þetta er kannski bara þess virði að kveljast smá :o)
Þetta er búin að vera ein að þessum verkefnalitlu vikum hérna í vinnunni, fyrir mig amk.
Sendum út tvö útboð í gær, sem þurfti ekkert að vinna meira í síðan á föstudaginn. Svo núna er ég búin að vera að hanga á netinu og læra straumfræði. Búin að taka til á borðinu mínu, í tölvupóstinum mínum og skoða fasteignasíðurnar 100 sinnum.
Hvað á maður svo að gera?

4.10.04

Þetta er nú meiri mánudagurinn.
Við Júlli vorum búin að finna hús, sem við ætluðum að fara að skoða og kaupa ef okkur litist vel á.
En það seldist á föstudaginn!
Það er sko búið að vera á sölu í marga, marga mánuði.
Alveg er þetta týpískt...
Svo er ég hálf verkefnalaus hérna í vinnunni og er bara að læra.
Þetta hefði verið brillíant dagur til að vera heima með smá flensu.
Sitja bara uppi í rúmi, með risakoddann minn vafinn um mig, að prjóna.
Ætla að reyna að drífa þennan litla krúttlega kjól af svo ég geti byrjað á einhverju strákalegu ;o)
Ég er búin að vera að lesa mér aðeins til um kaffidrykkju á meðgöngu, þar sem stelpa sem var að vinna með mér, og er líka ólétt, sagði að barnið gæti orðið ofvirkt..
Búin að finna eitthvað um þetta á þremur stöðum, ein sagði mest 3 bolla á dag, önnur 4-5 og síðasta 6 bolla eða minna. Þannig að ég ætla að halda mig við ca. 6 :oD
Miðað við það að ég var í stúdentsprófum þegar ég gekk með Dísuna mína, sturtaði í mig orkudrykkjum og kaffi í tonnatali og hún eins róleg og barn getur verið, ætla ég ekki að hafa miklar áhyggjur af þessu. Það er nú ekki hægt að sleppa öllu!
Væri sko alveg til í að þamba nokkra bjóra núna...