heidan.blogspot.com

28.9.04

Í dag komst ég í tveggja stafa tölu :o)
Þá er ég ekki að tala um að ég hafi verið komin yfir 100 kílóin ;o)
Ég geri auðvitað ekki mikið annað en að þyngjast núna.
Nei, ég er sko komin í 99 daga þangað til litli strákurinn okkar kemur í heiminn :oD
Í tilefni dagsins gerðist ég heimsforeldri á unicef.is.
Augnlokin hafa sjaldan verið þyngri á þessum tíma dags.
Búin að vera að magntaka aftur og aftur, því alltaf breytist þessi blessuð bygging.
Á morgun á þetta að vera búið og við Hulda unnum því hálfan laugardaginn í gríðarmiklu stuði.
Tókum meira að segja smá pílu og vorum farnar að hitta spjaldið eftir nokkrar tilraunir (þá er ég að tala um korktöfluna sem er á veggnum bakvið píluspjaldið ;o))
Á fimmtudaginn eru svo 3 vikur þangað til við förum til Köben, jei :o)

22.9.04

Við saumóstelpurnar fórum á Heitt og kalt í hádeginu í gær og það var bara mjög gott.
Var gráðug og fékk mér bæði súpu og salatbar :oP
Átti svo að mæta til tannlæknis í dag kl. 11 hélt ég og þegar ég mætti kom í ljós að ég átti að mæta kl. hálf 11!
Ég veit ekki hvað er með mig og tannlækna!?
Síðast þegar ég átti að koma til tannlæknis og láta rífa úr mér endajaxl gekk það ekki eins vel og ég var að vona...
Hann sagðist hafa þurft að nota græjurnar í neyðartilfelli og gæti því ekki tekið hann þá. Svo fékk ég annan tíma, sem ég mætti stundvíslega í. Þá var hann bara ekki við!
Ég barði á hurðina og enginn svaraði!
Ég athugaði nú reyndar ekki af hverju hann var ekki við, en nennti svo aldrei að panta mér nýjan tíma. Núna var hann að minna mig á að þetta gerðist fyrir 4 árum! :oS
Nú verða tennurnar teknar í gegn, svo ég þurfi ekki að fara til tannlæknis næstu 4 árin...

21.9.04

Nýjasta prinsessa fjölskyldunnar, hún Dagný :o)


20.9.04

Prinsessan mín :o)

Jei ég var að eignast litla frænku í morgun.
Hún fæddist rétt fyrir 7 eða 40 mínútum eftir að mamma hennar lagði af stað á fæðingardeildina.
Ég ætla sko að kíkja á eftir, þó ég þurfi að fara á bremsulausa bílnum mínum :oP

17.9.04

Hefur einhver fundið heila?

Ég veit ekki hvað er að hausnum á mér í dag.
Það er ekki bara það að ég sá alveg óendanlega sybbin heldur get ég bara einfaldlega ekki hugsað... og ekki bætir það úr að systir mín sem var komin upp á fæðingardeild, var send heim með 4 í útvíkkun.
Ég er bara að bíða eftir því að fá að kíkja á litla nýja krílið :o)
Ég ætla að vera kærulaus í dag og fara heim kl 4. Vinn bara lengur á mánudaginn í staðinn ;o)

16.9.04

Litla stelpan mín var bara búin að púsla 280 stykkja púslið í morgun þegar ég fór á fætur.
Þetta er í fyrsta skipti sem hún gerir það alveg ein.
Hún er ekkert smá klár og svakalega þolinmóð.

Í morgun á leiðinni í vinnuna lenti ég í útvarpsflakki á Létt fm og þar var verið að tala við uppeldisfræðing. Ég hafði einmitt verið að spá í að leyfa Þórdísi að prófa dans, tónlist eða einhverjar íþróttir, en ég er ekki svo viss um að ég fari að drífa í því.
Hún sagði að 5 ára börn(eða börn á leikskólaaldri) ættu ekki að vera í prógrammi eftir leikskóla og var líka að tala um að það að kenna börnum í leikskólnum stafina væri kannski ekki sniðugt.
Börn ættu að vera börn þangað til þau byrja í skóla. Engar rannsóknir hafa sýnt að börn sem kunna að lesa og gera ýmislegt áður en þau fara í skóla, geri þau eitthvað betri í skólanum seinna.
Þegar börn eru í miklu prógrammi læra þau ekki að nota ímyndunaraflið, sem gerði þau jafnvel lokaðri og bældari þegar þau verða eldri.
Ég er ekkert endilega viss um að ég sé sammála öllu sem hún sagði, en ég er að hugsa um að bíða aðeins með að setja Dísu mína í eitthvað svona. Það kemur nógu fljótt.
Hún á bara að fá að vera heima og púsla og lita og syngja eins og hún gerir alltaf.
Við mættum hins vegar vera duglegri að fara með hana í gönguferðir og skoða eitthvað nýtt.

15.9.04

Jæja ég er búin að vera að magntaka stækkun spennustöðvar Norðuráls á Grundartanga síðustu vikur. Ekkert smá hús þar á ferðinni og frekar mikil vinna.
Í dag voru þau sem sjá um hönnunina að segja mér frá því að það sé búið að breyta húsinu. Þá erum við ekki að tala um taka einn vegg eða hækka einn stokk (eins og er búið að gerast óhugnarlega oft á þessum 3 vikum.
Nei það er bara búið að breyta húsinu.
Þannig að það þarf að magntaka ALLT aftur og það versta er að það á að klára þetta eftir 1-2 vikur og það er ekki búið að hanna breytingarnar.
Nú er semsagt ekkert að gera, því ég er að bíða eftir að fá að byrja aftur á því sem ég er búin að eyða 3 vikum í. Samt get ég ekki byrjað strax.
Þetta verður án efa hressandi 2 vikur.
Fyrst ekkert, svo allt á fullt!

Eins og mig langar mikið til að segja ykkur frá spennandi hlutum sem eru að gerast í lífi mínu, nenni ég því ekki.
Kláraði loksins þúsund púsla púslið í gær og sá að það vantaði eitt. Hvað er meira pirrandi?
Ég held að fjölskyldumeðlimir séu guðslifandifengir að losna við þetta af sófaborðinu.
Betra að halda sig bara við pjónana. Auðveldara að pakka þeim saman, án þess að eyðileggja einhverra daga eða vikna vinnu.
Nú er ég annars bara að bíða eftir að geta byrjað að prjóna pínulítinn kjól á litla krílið hennar systur minnar, en þar sem það er ekki fætt og ekki vitað um kynið er ég að hugsa um að bíða í nokkra daga. Ætti ekki að vera meira en 1-2 vikur, jafnvel minna :o)
Hlakka ekkert smá til að fá að æfa mig aðeins... og geta svo skilað ;o)

7.9.04

Húff ég sem er að pirrast út í alla sem eru lélegir að blogga.
Vika síðan síðast!

Mig langar í þægilegt haust og mildan vetur með snjó!
Ekkert svakalega miklum, þannig að það verði ófært.
Ég held samt að mér verði ekki að ósk minni.
Ég sé nebla í kristalskúlunni minni blautt haust og rauð jól. :o)
Hva, eiga ekki allir kristalskúlu?
Ég var að hlusta á útvarpið í gær og þar var einmitt kona sem sá veðrið og stjórnmálin og eitthvað svona skemmtilegt í kristalskúlunni sinni.
"Ég er að sjá blautt haust...."
Er þetta eitthvað svona spákonumál. Af hverju er ekki hægt að segja bara "Ég sé.."?
Nú er ég auðvitað með smá fordóma gegn svona liði og ekki gerir það fólk trúverðugra að tala ljótt og vitlaust mál.
"Ég er að sjá Davíð Oddsson hætta í stjórnmálum eftir næstu kosningar og hann á eftir að skrifa. Hann á eftir að koma á óvart, með því að vera fyndinn...."
Æi ég held ekki......