heidan.blogspot.com

30.8.04

Jæja þá er fyrsta frí helgin mín síðustu vikurnar að baki.
Þetta var rólegheitarhelgi, farið í heimsóknir og prjónað og lesið og svona eitthvað kósí.
Þó prófin hafi ekki farið alveg eins og best var á kosið, nenni ég ekki að velta mér upp úr því.
Bjartsýni að ætla að taka 3 próf í besta veðri sumarsins.
En núna tekur bara við vinna í vetur og það er sko alveg æði. Að þurfa ekki að mæta í skólann í vikunni eins og einhverjir dugnaðarforkar ætla að gera.
Á föstudaginn var smá partý hérna í vinnunni, þar sem ein var að hætta og einn átti afmæli. Þau buðu í köku og kaffi og gos. Einhverjir fengu sér bjór, eins og venjan er hérna á föstudögum. Tek þátt í þeirri menningu þegar ég sný aftur úr orlofinu næsta sumar! :o)

Annars er nú alveg týpískt að núna þegar prófin eru búin, byrjar bara að rigna...
Ég þjáist reyndar núna af algjörum einbeitingarskorti og er að vona að það líði hjá.
Svo ætlum við saumó á American Style á morgun.
Langt síðan ég hef farið þangað, namm namm :oP

27.8.04

Jei jei!!!!
Ég var að kaupa miða til Köben. Áætlað er að heimsækja Stebba og Sóleyju og fleiri sem eru úti núna að læra og leika sér.
Hva ég verð bara komin 30vikur þannig að þetta verður lítið mál ;o)
Nú er bara málið að redda pössun...

23.8.04

Húff það er hægt að kenna mörgu um það að ég geri ekki ráð fyrir að útskrifast núna, góðu veðri t.d. , en ég nenni ekki að velta mér upp úr því. Held ég geti bara aðallega sjálfri mér um kennt!
Ef ég klára bara eitt, er ég aðeins sáttari.
Það er víst aðeins erfiðara að fara í 3 sumarpróf en ég hélt, vissi samt að það væri ekkert auðvelt.
Nú langar mig bara að fara að vinna aftur og hafa áhyggjur af þessari útskrift seinna.
Ætla samt held ég að þrauka gegnum þetta síðasta próf sem er á morgun...

11.8.04

Veðrið er svo æðislegt.
Er það ekki dæmigert að það skuli vera svona í próflestri.
Ég er búin að nota yndislegu svalirnar mínar mikið í dag :o)

10.8.04

Úff hvað maður er orðinn lélegur í blogginu og ekki er ástæðan sú að maður sé duglegri í einhverju öðru, hmm..

Fór í yndislegt brúðkaup á laugardaginn hjá Hólmfríði vinkonu minni. Allt alveg rosalega vel heppnað. Athöfnin var frábær, Hamrahlíðarkórinn söng nokkur lög og svo var lúðrasveit sem lék brúðarstefið. Ég fékk alveg nokkrum sinnum tár í augun og kökk í hálsinn :o)
Æðislegur matur og kakan frábær og dansað langt fram eftir.

En svo var soldið skondið um morguninn, þegar ég var að baka morgunverðarbollur heyrði ég allt í einu trompetleik úti á götu. Ég leit auðvitað út og þá var maður að spila hérna á leikvellinu á móti okkur. Svo eftir smá stund fer aðeins að fjölga fólkinu þar. Gunnar Smári, ritstjóri Fréttablaðsins og kærastan hans, prestur og svona 5 aðrir.. og auðvitað hundurinn komu svo út.
Þá voru þau, Gunnar Smári og kærastan hans að láta pússa sig saman, úti á róló :o)
Mér finnst þetta alveg frábært. Og enginn frá Séð og heyrt var mættur ;o)

4.8.04

Síðasti vinnudagurinn minn í bili hálfnaður.
Nú tekur við próflestur. Nú er eins gott að gefa sér ekkert frí og tækifæri til að sofa og vera löt. Gæti sko alveg sofið í 3 vikur í staðinn fyrir að lesa og fara í próf.
En mig langar nú eiginlega bara að klára þetta núna og þurfa ekki að fara í próf um jólin og í vor í staðinn. En kemur bara í ljós. Ég er sko ekkert viss um að ég klári þetta núna.