heidan.blogspot.com

28.7.04

Húff mér líst nú ekkert sérstaklega vel á spána fyrir næstu helgi.
Þar sem við verðum líklega er spáð rigningu, eins og á flestum stöðum.
En þar sem við verðum í bændagistingu, sem ég hef aldrei prófað, skiptir það kannski ekki svo miklu máli.
Hefði samt ekki verið leiðinlegt að hafa veðrið sem var síðustu verslunarmannahelgi.

Annars var ég að byrja að kíkja á Umhverfisverkfræðina, sem ég er að fara í próf í núna í ágúst.
Ég mundi sko alveg að prófið hefði verið svínslegt, en SVONA svínslegt! Jeminneini!
10 krossaspurningar, sem gilda 1 % hver og -1%  fyrir vitlaust svar.
Svo var ég að kíkja á eina og skoðaði glósurnar og þar voru 3 svör rétt af 4 en 1 réttara.
Stóð ekki einu sinni í glósunum hvert var réttast.
Maður hefði þurft að vera í tímanum og glósa á fullu til að ná því, sem ég held að bara enginn hafi gert!
Jæja, vonandi reddast þetta, kannski hefur hann mildast og ákveðið að leyfa okkur tveimur sem eigum þetta eftir að ná þessu.
Ekki líklegt en ég vona það...

23.7.04

Ég mæli sko með Yndisauka fyrir ofan bókabúðina Iðu í gamla Topp shop húsinu.
Þar er hægt að fá hlaðborð, kostar reyndar 1800 kall held ég.
Ég fór áðan og fékk humar, skelfisk, kjúklingaspjót, hörpuskel, fyllta sveppi, æðislegt pasta, brauð og pesto og sushi. Svo eru ávextir og eitthvað gott á eftir.
Mér finnst sko ekki mikið að borga 1800 fyrir þetta!

22.7.04

Æææ togstreyta
Ég er svo þreytt og mig langar svo mikið til að hvíla mig bara um helgina og gera ekki neitt.
Hins vegar er fullt skemmtilegt að fara að gerast.
Alveg prógram, sem mig langar ekki til að missa af.
Út að borða, heimsókn í brúðkaupsundirbúning, brúðkaup og fjölskylduboð fylla helgina frá fimmtudegi til sunnudags. Virkilega gaman allt, en ég er svo þreytt, hvað er hægt að gera?
Aldurinn greinilega farinn að segja til sín...

21.7.04

Takk allir :o)
Vá nú held ég bara að allir séu búnir að hringja, senda sms eða senda afmæliskveðju á MSN, þeir sem ekki eru bara búnir að kyssa mig og knúsa í tilefni dagsins.
Það bara muna allir eftir afmælinu mínu :o)
Maður er nú líka bara 25 ára einu sinni á ævinni!!!

19.7.04

Mmmm yndisleg helgi að baki.
Fórum til Þingvalla á föstudaginn og tjölduðum þar eina nótt.
Ég veiddi minn fyrsta fisk í örugglega 10 ár, en sleppti honum aftur.
Þetta var pínu lítil murta. Næst ætla ég að veiða stóran fisk!
Ég var sko að vígja "nýju" fluguveiðistöngina mína, sem ég fékk í afmælisgjöf fyrir ári.
Ég er bara orðin doldið góð í að kasta, en það er sko ekki auðvelt skal ég segja ykkur.
Miklu meira mál en svona venjuleg veiðistöng.
Svo fórum við á laugardaginn í ferð um Þingvelli í æðislegu veðri og gengum að Öxarárfossi og skoðuðum fleiri staði sem ég hef ekki skoðað í mörg ár.
Fórum svo heim og ætluðum á reunion hjá MR, en fórum bara í bekkjarpartýið á undan, vorum svo þreytt eftir sólina um daginn að við fórum bara heim og horfðum á vídjó.
Svo var fjölskyldudagur í gær, hitti frændfólk mitt frá Danmörku um daginn og tengdafjölskylduna í grilli um kvöldið.
Besta helgi í langan langan tíma :oD

15.7.04

Nú er ekki gott að vera í vinnunni.
Það er verið að lakka gluggann minn að utan og það er heitt.
Þannig að núna er lokaður glugginn, það er vont loft hérna og lakklykt. :o(
Gott að hafa fínan sófa til að skreppa í öðru hvoru og það er ekki eins mikil lakklykt!

14.7.04

Jei við erum að fara í bústað.
Verð reyndar að vera alveg hrikalega dugleg að læra því þetta er síðasta helgi fyrir próf. Sýnist ég reyndar kannski hafa gert ráð fyrir of stuttu fríi fyrir prófin. Kannski ætti ég að reyna að redda einni viku í viðbót, svo það sé nú kannski einhver smá séns í að klára þetta einhvern tímann.

2.7.04

Nammi namm, við Júlli fórum á Argentínu í gærkvöldi í tilefni af 25 ára afmælinu hans. Það var algjör snilld. Æðislega góð stemning á þessum stað og fórum út alveg pakksödd!

Einhvern veginn finnst mér alltaf vera helgi. Það mætti reyndar alveg vera betra veður, svo það sé kannski hægt að skella sér í taldferðalag.
Stelpuskvísurnar í saumó ætla að ganga Fimmvörðuhálsinn og ég vona að það verði fínt veður, ekki gaman að ganga 8 tíma rennblautur í rigningu og roki.

En vá hvað ég er svöööng!!!