heidan.blogspot.com

28.6.04

Já góðan daginn...

Ég er bara búin að vera sambandslaus við umheiminn í nokkra daga.
Síminn minn er búin að vera batteríslaus í meira en viku, því ég fann ekki hleðslutækið. Netið virkar ekki hjá okkur heima og ég er búin að vera veik og var því ekki í vinnunni fimmtudag og föstudag.

En ég verð að segja að mér finnst rosalegt hvað þetta sumar ætlar að klárast hratt.
Mér finnst ég eiginlega nýbyrjuð hérna í vinnunni, en samt er ég búin að vera hérna í næstum 1 og hálfan mánuð.
Svo þarf maður að fara taka á í prófmálunum, þó ég sé frekar svartsýn á að útskrifast í haust... og þá gerist það ekki fyrr en næsta vor!
Frekar asnalegt að eiga bara einhver vorpróf eftir.
Það kannski hvetur mann til að drífa þetta bara af í sumar!

22.6.04

Vá hvað er gott veður.
Það er svo vont að vera að vinna inni í þessu veðri.
Maður fær bara hausverk.
Ég ætla að reyna að krækja mér í nokkrar freknur í hádeginu :o)
og hætta svo bara frekar snemma.

20.6.04

Til allra sem voru að útskrifast í gær

Til hamingju!!!

Lagði ekki í að kíkja í fleiri veislur en til Hörpu á Hressó.
Þar var fullt af fólki.
Stebbi Hilmars kom og spilaði og svo Böddi og Danni.
Fullt af bjór og hvítvíni í boði og allir í svaka stuði.

16.6.04

Úff hvað ég er léleg að blogga.

Úff hvað ég er þreytt.
Ég hlakka til að komast heim og leggja mig.
Var andvaka í nótt.
Að öðru leyti líður mér frábærlega :oD

11.6.04

Ekki er nú Mallorkaveður í dag.
En samt fórum við Saumó á Salatbarinn, þar sem er nú alltaf gott.
Margar í nýjum skóm og svona, verst að ég er ekki eins fín og þegar ég mætti í morgun.
Mér tókst nebla að sulla á rauða bolinn sem er í stíl við nýju rauðu skóna.
Verður ekki alveg eins gaman í dag fyrir vikið, en það er ekki auðvelt að vera með svona stór brjóst ;o)

10.6.04

Ef einhver staðar á Íslandi er Mallorka veður þá er það á pallinum hjá afa.
Ég ætla þangað í hádeginu :o)

Svo verður grillað í kvöld og ætla ég að búa til einhverja góða köku eftir vinnu, með fullt af ávöxtum.
Nammi namm :oP

Já og svo er Dagný komin heim og byrjuð að blogga.
Vonandi hristir hún aðeins upp í okkur lélegisbloggurunum.
Taki til sín sem eiga ;o)

8.6.04

Vá það er bara kominn 8. júní.
Rosalega líður tíminn hratt.
Þetta er fyrsta "langa" vikan mín hérna í vinnunni.
Búin að lenda á tveimur frídögum og tók svo einn dag í frí.
Svo er næsta vika líka stutt.
Mér finnst stuttar vikur góðar.
Önnur hver vika ætti að vera stutt.
Svo styttist í útskriftir og ég á von á því að verða boðin í 2 hópútskriftir.
Ég er alla vega búin að lofa mér til Hörpu hjúkku.
Þar sem Diljá skvísa verður veislustjóri.
Það verður sko ekki leiðinlegt!!!

3.6.04

Ólafur fær sko mitt atkvæði!!!
Ekki bjóst ég við því að Ólafur Ragnar myndi ekki skrifa undir, en auðvitað vonaði maður það.
Mér finnst eiginlega að þetta hefði mátt gerast fyrr.
T.d. Kárahnjúkavikjun, Íraksmálið, útlendingafrumvarpið, svo fátt sé nefnt.
Ég skil ekki þá sem segja að þetta þurfi endilega að þýða að það verði einhver stjórnarkreppa.
Þetta er bara mál sem Forsetanum finnst vera þess virði að fólkið fái að segja sína skoðun á.
Svo eru kosningar framundan og fínt að skella þessu bara í einn pakka.
Snilld!

2.6.04

Snilld!!!

Nammi namm...
Við Saumóskvísurnar fórum á Beygluhúsið í hádeginu.
Rosalega gott og ég er alveg pakksödd.
Það eru svo margir staðir hérna á Grensás og Skeifunni að maður nær örugglega ekki að prófa helminginn í sumar.
Næst verður samt farið á Salatbarinn. Þar fær maður þó alla vega matinn á sama tíma ;o)

Rosalegt verkefni...
Ég er að teikna einhverja svakalega stóra og flókna spennistöð núna í vinnunni.
Stálgrind, með fullt að stífum og veseni.
Byrja á því að teikna í autocad í 3vídd og flytja það svo inn í sap2000 til að burðarþolshanna.
Þetta er bara ansi magnað og spennandi :o)

1.6.04

Jei búin að fá útborgað :o)