heidan.blogspot.com

27.5.04

Það er eiginlega svona nokkurs konar föstudagur í dag og svo þrír laugardagar í röð... föstud, laugard, laugard, laugard og sunnud.
Er sko í fríi á morgun til að geta farið í sveitaferð með Dísu skvísu.
Svo er þetta líka löng helgi. Vá svona mætti þetta vera oftar.
Ég ætla að sofa mikið og borða mikið um helgina :o)

PIXIES ERU SNILLINGAR!!!
Vá hvað þetta voru frábærir tónleikar í gær.
Rosaleg stemning. :o)

26.5.04

PIXIES Í KVÖÖÖÖLD!!! :o)
...þið sem ætlið er eitthvað að gerast á undan?

25.5.04

Stundum er bara soldið gaman að fá einkunnir.
Ég hef eiginlega ekki upplifað það í frekar langan tíma :o)
Greinilegt að ég er á réttu sviði á Hönnun!

22.5.04

21.5.04

Úff hvað maður er slappur við að blogga.
Það helsta sem af mér er að frétta er að ég er byrjuð að vinna. Þetta er rosalega skemmtilegt og ég er strax búin að fá skemmtilegt verkefni.
Svo er Dísa mín búin að vera með hlaupabólu í viku.

Kannski maður fari bara að hætta þessu bloggi, maður hefur hvort sem er ekkert skemmtilegt að segja...

16.5.04

Jæja ef maður væri nú bara komin í frí. Nei ég á eftir að klára húsagerðarverkefni, sem á að skila á morgun. Nenni engu núna, mér er illt í maganum og ég er þreytt. Kannski ég leggi mig aðeins áður en ég klára verkefnið :oÞ

14.5.04

BÚIN!!! :oD

10.5.04

Ég nenni ekki að vera í prófum lengur.
En nú er þetta alveg að verða búið.
Þá get ég farið að leika við Dísuna mína :o)

8.5.04

Eitt próf eftir...

Það er semsagt 6 dagar í gleði, sól og sumar :oD