heidan.blogspot.com

31.3.04

Þú ert það sem þú borðar...!
Við Inga Rut skelltum okkur á Reykjavik Bagel Company og fengum okkur Beyglur!
Sniðugt að eiga vinkonu á svona stað... Inga Rut sko...
Við fengum sko tvo afsláttarmiða á mann, frí beygla ef þú kaupir kaffi (hehe Inga Rut).. og sætabrauð í eftirrétt.
Svo fékk Inga Rut líka hnetubrauð og gaf mér helminginn :o)
Vá hvað Inga Rut hlýtur að vera góð vinkona!!!

29.3.04

Jæja komar myndir úr vísindaferðinni í Byko.
Þetta er líklega síðasta vísindaferðin sem ég fer í, þar sem þetta er sú síðasta í vetur.
Laugardagskvöldið var hins vegar djammlaust og frábært.
Besta laugardagskvöld sem ég hef átt í langan tíma :o)


Næsta föstudag er svo aðalfundur.
Við Inga Rut ákváðum í dag að vera bara rólegar.
Svo á laugardaginn fer litla skottan mín til Englands og verður í viku :o(
Þetta verður erfið og löng vika, sem ég ætla að nýta rosalega vel í lærdóm.
Hver ætlar að vera memm?

28.3.04




You Are a Plain Ole Cup of Joe
But don't think plain - instead think, uncomplicated
You're a low maintenance kind of girl... who can hang with the guys
Down to earth, easy going, and fun! Yup, that's you: the friend everyone invites.
And your dependable too. Both for a laugh and a sympathetic ear.

What Kind Of Coffee Are You? Take This Quiz :o)

25.3.04

Jæja enginn vill gefa gefa sig fram.. þá geri ég bara ráð fyrir að þetta sé ástsjúkur aðdáandi ;o)

Ég lenti í frekar óskemmtilegri reynslu áðan.
Var að reikna kiknunarmóment fyrir skemmtilegan bita áðan á bókasafninu.
Svo allt í einu hrinur yfir mig fullt af ryki... tvisvar!!
Alveg svona stórar flyksur.
Ég veit ekkert hvaðan það kom, en ég var ekki lengi að færa mig.
Ég get ímyndað mér að þetta sé ekki mjög heilsusamlegt umhverfi þarna á bókasafninu.

Hver sendi mér áðan nafnlaust sms og einhvern polytone eða eitthvað sem ég gat ekki opnað?

24.3.04

Krabbinn (22. júní-22. julí)
Þér verður mest úr verki um morguninn, sérstaklega ef þú ert að fást við vandasamt verkefni. Seinni hluti dagsins verður rólegur.

23.3.04

Mig langar á alla tónleikana.
Eru ekki fleiri?

Kraftwerk
Pixies
Violent Femmes
Placebo
KoRn
Incubus
Metallica

22.3.04

Jæja ég er orðin alveg agalega lélegur bloggari.
Ég hef smá afsökun, var sko í prófi á laugardaginn og búin að vera að lesa alla síðustu viku.
Við Beta vorum bara rosalega duglegar og bjuggum eiginlega á Bókhlöðunni.
Svo fór ég í sumarbústað með bekknum á laugardagskvöldið.
Mér tóks að verða alveg hryllilega bílveik á heimleiðinni, með frekar óskemmtilegum afleiðingum.
Mér verður örugglega ekki boðið far framar!

13.3.04

Beta Beauty
Við hittumst nokkrar skvísur í gær og Beta eldaði handa okkur.
Fyrst var ljúffengur humar. Svo var nauta carpaccio og sushi.
Eftirmaturinn var líka algört æði, marens ávaxtaterta.
Svo bauð Bogga sæta upp á Irish coffee.
Takk fyrir mig!!!
Þetta var svooo gaman :oD

11.3.04

Vá ég hef aldrei verið nær því að fljúga eins og á leiðinni í skólann áðan!!!