heidan.blogspot.com

30.11.03

Fyrsti í Aðventu
...og maður er bara að lesa fyrir próf. Gengur ekki vel.
Reyndar á þriðjudaginn, þegar þetta próf er búið þá eru bara 2 próf eftir og 15 dagar þangað til maður er kominn í frí. Get ekki beðið eftir að fara að læra Straumfræðina
Mig langar bara að fara upp í rúm að sofa....

25.11.03

Af hverju fæ ég ekki link?
Ég er nú bara smá móðguð :o(

Æi æi
Ég er aftur orðin svo slæm í bakinu að ég get varla hreyft mig. Úff svo er að styttast í prófin.
Lét mig samt hafa það að drífa mig niður í Óperu áðan á frábæra Vínartónleika. Sé sko alls ekki eftir því, þetta var æði!
Fór svo beint heim og upp í rúm, því þar líður mér skást.

24.11.03

Úff púff, helgi spelgi..
Það eru víst komnar myndir á netið úr vísindaferðinni í Hönnun á föstudaginn. (þó það sé ekkert pláss fyrir það á umbygg svæðinu, hmmm, skil ekki...)
En það er doldið merkilegt, en ég man bara ekki eftir að hafa séð myndavélina eftir að ég var að taka nokkrar þarna alveg fyrst. Samt er mynd af okkur Dagnýju þarna og svo mynd af mér að varalita Eirík, sem ég mundi nú ekki einu sinni eftir. Þetta er nú samt allt saman smám saman að rifjast upp fyrir mér.
Þetta kennir manni það að taka ekki svona langar pásur frá drykkju. Bæði það að maður er ekki í æfingu, svo er það svo gott að maður gleymir sér alveg.
Man síðast eftir mér (óljóst) þegar ég var að segja Dagnýju og Ingu Rut hvað ég elskaði þær mikið, úff það hljómar rosalega drukkið ;o)
Svo sagði Júlli mér að Dagný hefði hringt í sig og sagt að ég væri að koma heim, hann reyndi oft að hringja í mig og þegar ég loksins svaraði var ekkert hægt að tala við mig. :o)
Þetta var semsagt föstudagskvöldið í hnotskurn frá hálf sex til ellefu.

19.11.03

Ég veit ekki hvort það er smekklegt að tala um bólur á netinu.. en ég er alla vega að verða brjáluð. Ég keypti mér um daginn eitthvað helvítishreinsidrasl (voða fínt frá clinique). Núna er ég bara eins og ég sé með hlaupabóluna. En ég er það EKKI!!!

En hvernig líst ykkur á þetta? :o)

18.11.03

ALIAS var svo spennandi í gær að ég held varla vatni yfir því.

17.11.03

Ég verð nú að segja að þetta er ein besta máltíð sem ég hef upplifað og hún var ókeypis í þokkabót, en vá hvað ég er södd!
Við þurftum bara að kaupa okkur rauðvín með matnum :o)

Ég: Hvítlauksristaðir humarhalar á volgu shiitake-sveppasalati með vorlauk og ætiþistlum.

Júlli: Úrval af 4 forréttum að hætti ,,Lækjarbrekku’’.

Ég: Andarbringa með rauðvínsgljáa og ,,Rösti’’ kartöflu.

Júlli: Hreindýrasteik með hindberjasósu, volgu eplasalati og kantarellusvepparjóma.

Ég: Mokka ,,Créme brulée’’ með möndlu baileysís.

Júlli: Heit ,,Valrhona’’ súkkulaðiterta með banana-rommsalati og kakóbaunasýrópi

.. og við bæði portvín með eftirmatnum
(og þetta þurftum við ekki að borga fyrir :o)

Við erum að fara á Lækjarbrekku liggaliggalái :oD

Þetta er eitt það hrikalegasta sem ég hef séð lengi :o|

16.11.03

Jæja helgin að baki.
Ég er búin að gera rosalega fínan lista yfir öll verkefni og dæmi sem eftir eru á önninni. Þetta er bara ekkert svo mikið held ég.
Reyndar er ég nú ekkert sérstaklega sátt við það að Þorsteinn setji fyrir 8-10 manna hópverkefni sem á að skila 8. desember. En við ætlum að reyna að vera búin með þetta fyrir fyrsta prófið sem er 1. desember.
Annars er þessi helgi búin að líða án þess að ég hefi gert neitt. Svona eiginlega. Ég fór reyndar á opnun sýningar í Hafnahúsinu á laugardaginn. Þetta var ljósmynda/arkitekúrsýning. Mjög fín sýning og það var hvítvín og tilheyrandi.
Lærði ekki mikið meira en aðrar helgar. En nú verður maður að fara að byrja!
Annars stefni ég að því að fara í vísindaferð á föstudaginn, síðustu fyrir próf. Hef ekki djammað síðan á Kennarafagnaðinum fyrir 3 vikum og það var nú varla djamm....

13.11.03

Brauð!
Við Júlli fórum í hádeginu í mötuneytið í Háskólabíói og fengum okkur Lasagna. Ótrúlega góð tilbreyting. Maður er alltaf borðandi brauð. Á morgnana þegar maður nær að borða morgunmat er það cheerios. Ef ekki, er það rúnstykki með osti. Þegar maður smyr sér nesti er það samloka með skinku og osti og í hádeginu er það oftast það sama. Ég er alveg komin með upp í kok af öllu þessu brauði. Svo er maður oft frekar seinn úr skólanum og þá nennir maður ekki að elda(ansi oft upp á síðkastið) og fær maður sér bara brauð, því Þórdís er þá oftast búin að borða hvort sem er.
Mín vandamál eru svo stór. :oP

11.11.03

Við kláruðum framkvæmdarfræðina í gær. Þá má segja að 3 einingar séu komnar.
Þá er bara málið að sökkva sér í hinar 9 sem eftir eru á þessari önn.
Ég ætla rétt að vona að bakið verði betra í prófunum, því að ég get eiginlega ekkert gert núna, ekki setið og varla einbeitt mér. Ég á eftir að gera fullt af verkefnum og þarf að fara að lesa upp slatta mikið.
Kannski get ég gert eitthvað liggjandi...

5.11.03

Jæja það er langt síðan maður hefur bloggað.
Nú er verkefnishandbókin okkar eiginlega tilbúin og skilamatið langt komið.
Kynningin er á mánudaginn, skil á miðvikudaginn og þá er þetta bara búið.
Þá getur maður farið að taka sig á í Samgöngutækninni og Straumfræðinni, svo maður nái nú að útskrifast í vor.

Á morgun er svo fyrsti tí­minn minn í sjúkraþjálfun. Ég er farin að hlakka til. Gott að fá að vita hvernig stendur og hvort eitthvað þarf að gera.
Vont að vita ekki neitt.