heidan.blogspot.com

28.9.03

Dagný skvís segir frá Haustferðinni. Ég skemmti mér vel, þangað til ég man varla eftir mér. Allsvakalega full og vitlaus!!!

En helgin er búin að vera fín. Í gær, í þynnkunni hans Júlla, bakaði ég pizzu, namm namm og við horfðum á vídjó og eitthvað. Dísin mín sofnaði í fanginu á mér :o)

Í dag fórum við í göngu- (og Dísa í hjóla-)túr. Fórum á róló í góða veðrinu. Ef þið hafið áhuga tók ég nokkrar myndir sem eru hér.

Svo sigraði minn maður í Formúlunni og er mjög nálægt því að verða í sjötta sinn heimsmeistari!
Ekki slæmur árangur það :o)

27.9.03

Setti myndir úr haustferðinni á netið. :o)

25.9.03

Aumingja litli Cilli :o( Búin að vera soldið óheppin síðustu daga. Reiknivélinni hennar stolið á bókasafninu og svo í gær þegar við vorum að fara að telja bíla við hringtorgið á Suðurgötu var bara keyrt aftan á nýja fína bílinn hennar.

Mér finnst að hún ætti að sleppa því að vera edrú á morgun og kaupa sér bara nokkrar þynnkutöflur (y).
Það er sko nebla Haustferð á morgun hjá okkur í Umhverfis- og byggingarverkfr. og við förum í þetta skipti á Suðurlandið.
Til gamans má geta þess að þetta er fjórða Haustferðin mín og líklega sú síðasta :o)
Þetta eru alveg ómissandi ferðir, bæði sem skemmtun og fræðsla. Svo endar þetta allt með vísindaferð "veitingum" og eftir hana verður farið í bæinn og haldið áfram að djamma!!!

22.9.03

Við Inga Rut völdum okkur kannski ekki heppilegastan dag í strætó.
Skrætóbílstjórinn í útvarpinu áðan sagði að það væru miklu fleiri í strætó í dag.
Ekki vissi ég að bíllausi dagurinn í dag og ég sem var að fá lánaðan bílinn hjá afa :o|
Fórum sko í strætó-leiðangur í samgöngutækni.
Annars var þetta bara ekkert svo leiðinlegt ;o)

Hver verður númer 35.000 ???

21.9.03

Úff ég veit ekki hvort það er út af veðrinu, gæti verið, en mig langar eiginlega bara að komast eitthvað burt.
Þ.a. við erum að pæla í að sækja um í DTU næsta haust. Daði benti mér líka á sniðugt kollegí sem er ekki langt frá skólanum og örugglega voða fínt fyrir barnafólk. Ég get varla beðið eftir því að komast út :o)
Það er auðvitað ekkert sem heldur manni hér, nema kannski bara fjölskyldan og vinir. En ég nú líka smá fjölskyldu í Danmörku og fullt af vinum eru farnir eða að fara...

En ég kann bara ekkert á svona. Hvernig á maður að sækja um? Þarf maður ekki að vera búinn að fá "já" frá DTU til að geta sótt um íbúð í kollegíi? Þarf ekki að gera þetta strax? Svo ef maður ætlar að reyna að fá styrk, hvað á maður þá að gera?
...og ég sem kann varla dönsku...

Úff maður er greinilega bara allt of mikið dekruð mömmustelpa :o|

17.9.03

Swiss (miss) Mocca
Ég var að finna upp svakalega góðan og einfaldan drykk. Þegar maður er með hálsbólgu er ekki mjög gott að drekka kaffi, en samt verður maður auðvitað að fá dagskaffiskammtinn sinn.
Ég ætla nú ekki að fara að halda því fram að ég hafi fundið upp swissmokka samt...

En þessi er bara svona, í stóran bolla:
Einn sterkur expressó
3 kúfaðar teskeiðar swissmiss
Vatn

Það er bara allt að gerast!!!
Birgitta Haukdal var að hætta með sínum og JLo og Ben Affleck voru að slíta trúlofuninni.

16.9.03

Ojj
þegar ég vaknaði í morgun var komin með ógeðslegt kvef og hálsbólgu. Þannig að fyrsta alvöru "skrópið mitt" er komið í hús. Hef hingað til ekki þurft að kópía glósur :o)

14.9.03

Pjásudjamm
Verkfræðistelpupartýið heppnaðist snilldarvel. Allar mættu í bleiku eða rauðu og með blóm og í stuði. Fordrykkurinn, Mojito er frábær, mæli sko þokkalega með honum. Maturinn var æðislega góður og sérstaklega þó eftirrétturinn hennar Betu. Súkkulaðikaka, sem var fjótandi :o), ís, jarðaber og kíwí.
Svo var bara setið og slúðrað og kjaftað og helgið mikið.
Þetta var rosalega gaman. Svo fórum við í bæinn. Endiðum á Pravda, dönsuðum við Justin Timberlake og indverska tónlist til 5, held ég.
Frábært kvöld!!! :o)

13.9.03

Úúú jeee!!!
Á morgun verður saumó dauðans :oD
Við verkfræðiskvísurnar erum sko að fara að grilla í óveðrinu og djamma.
Ég er farin að hlakka rosalega mikið til.

7.9.03

Namm namm.. ég keypti loksins hrefnukjöt í dag.
300 kr. er ekki neitt fyrir svona æðislegt kjöt. :o)

4.9.03

Úff þetta verður massíf helgi.
Á morgun byrjar átakshelgin í Framkvæmdarfræði, frá 13-17.
Svo er vísindaferð kl. 17.
Á laugardaginn heldur svo átakið áfram frá 9-13 held ég.
Svo förum við í bíó, Stórmynd grísla.
Svo er partý um kvöldið.
Sunnudagurinn verður svo átak frá 9-17.
Úff púff!!!

3.9.03

Loksins búin að fara í­ klippingu. Gott að eiga vinkonu sem klippir :o)

1.9.03

Mbl.is segir:
Þetta er tímamótaár í lífi ykkar.
Þið eruð að búa ykkur undir einhvers konar endurfæðingu þótt
þið gerið ykkur ekki endilega grein fyrir því.

Hmm hvað ætli það nú sé?

Getur einhver sagt mér af hverju ég get tengst netinu á annarri hæð en ekki í 3ja árs stofunni á 3. hæðinni???