heidan.blogspot.com

29.8.03

Sjóræningjar Karíbahafsins
Við Júlli fórum á Pirates of the Caribbean í gær.
Hún er snilld. Ég hef bara sjaldan skemmt mér svona vel í bíó, alla vega langt síðan.
Man ekki alveg hvenær ég fór í bíó síðast, jú ætli það hafi ekki verið einhver stelpumynd með Dagnýju filippseyjamær.
Þessi er allavega FRÁBÆR!

Hver ætlar að koma með mér í hádeginu á mánudaginn í Odda að borða súkkulaðiköku og drekka mjólk og fara svo og læra straumfræði?

28.8.03

Við erum búinn að fullskipa í framkvæmdarfræðihópinn okkar.
Við erum:
Ég, Dagný, Inga Rut, Arndís, Karen og Grétar.
Ég held þetta verði bara hressandi samstarf.
Núna á eftir koma svo stelpurnar og við ætlum að finna eitthvað skemmtilegt verkefni.
Grétar er sko enn þá að leika sér í útlöndum.
Svo er Dagný bara að fara til Filippseyja. Kæruleysi er þetta í fólki ;o)

27.8.03

Fysti skóladegi lokið!
Þetta var bara ágætur dagur. Mætti kl. 8, alveg á réttum tíma, eftir að hafa næstum lent fyrir bíl tvisvar á hjólinu mínu. Verð sko að fara varlega niður þessar svakalegu brekkur í Þingholtunum. Var svo í skólanum til 3.
Eins og Dagný bendir á er stjörnuspáin okkar allsvakaleg:
Yfir þig þyrmir allskyns töfum. Bíllin bilar, þú missir af strætó, eða eitthvað í þeim dúr. Þetta er bara brot af því sem ergir þig núna. Gættu að símreikningum.
Ég er kannski bara heppin að hafa ekki lent fyrir bíl eða eitthvað. Hef bara eiginlega ekkert talað í síma eða fengið reikning.
Reyndar er ég að drepast í bakinu og fætinum og staðan á reikningnum mínum er ekki hressandi og tölvan mín vill ekki tengjast þráðlausa netinu uppi í skóla og ég fæ ekki einkunnina fyrr en í næstu viku, en ég er hress :o)
Svo var ég eitthvað að misskilja, því að átakshelgin er ekkert um þessa helgi heldur næstu. Sem er ágætt. Þá nær maður kannski að veiða eða gera eitthvað skemmtilegt áður en maður fer á fullt í skólanum.

26.8.03

Skólinn er að byrja!
Á morgun byrjar skólinn og ég er farin að hlakka til :o)
Fyndið hvað mér finnst alltaf gaman að byrja í skólanum en fæ svo strax leið á honum.
Og sumarið búið...
Ég var að skoða planið yfir það sem við ætluðum að gera í sumar. Úff við erum nú ekki búin að standa okkur alveg nógu vel. Ég á líka alveg eftir að prófa afmælisgjöfina mína. Ég fékk nebla rosalega flotta fluguveiðistöng, sem ég verð að fara að prófa. En ekki verður það gert um næstu helgi því að þá er átakshelgi í Framkvæmdarfræði. Oj hvað ég nenni ekki.

25.8.03

Hver verður númer 34000?

KOLLSÁ
Fór í snilldarferð með bekknum í ættaróðalið hennar Ingu Rutar.
Hér eru myndir sem Ingimundur tók.

23.8.03

Djöfull er ég stolt af sjálfri mér!!!
Við fórum í kveðjupartýið hennar Diljár/afmælispartýið hennar Svanhvítar í gærkvöldi. Rosa gaman, bolla og læti og fyllikallinn spilaði á gítar. Partý eins og það gerist best. Fórum á eftir á 22 og heim kl. 4.
Svo var mín bara mætt í vinnuna klukkan sjö í morgun! ;o)

Svo er Óli að fara til úglanda :o( Ekki gaman.

22.8.03

Þvílíkur heiður sam manni er sýndur.
Takk fyrir :o)

20.8.03

Próf búið!
Á eftir er svo leikur og pizza, jei :o)

19.8.03

Hvað er verra en fullt af nammi þegar maður er í átaki???
Fullt af ostum!
Mamma og pabbi voru að koma frá útlöndum :oS

Afmælisbarn dagsins er enginn annar en Stefán Reynisson.
Nú er hann loksins orðinn jafn stór og við hin ;o)
Innilega til hamingju :o) Kisskiss

18.8.03

:'( Ég nenni ekki að læra. Mér er kalt. Það er skítugt hérna eftir partýið. Hef ekki tíma til að þrífa. Langar í nammi. Get ekki haldið einbeitingu. Ég skil ekki neitt. Nenni ekki að skilja neitt. Er þreytt. Langar bara að fara að sofa...

17.8.03

Menningarnótt 2003
....var snilld :o)

15.8.03

ÁTAK
Fyndið að Soffía skuli líka vera í þessum pælingum. Ég er búin að ákveða að taka mér smá tak og borða hollan og góðan mat og ekki of mikið af honum. Ég ætla ekki að kalla þetta megrun samt. En meðan maður getur varla hreyft sig eru meiri líkur á því að maður tútni út.
Þetta er snilldarforrit... ég komst meira að segja að því að ég hafði ekki borðað nema 1208 kkal í stað 1500 á mánudaginn.
Svo er lítill bjór bara 129 kkal
...og hálf hvítvínsflaska er 277 kkal!

Það er alla vega rosalega gaman að skoða hvað maður er að setja ofaní sig.
Er að spá í að telja Júlla mat líka, úff nei það er of mikið ;o)

13.8.03

Það er farið að styttast í aðalhelgi sumarsins.
Við ætlum að fara út að borða vinirnir, 11 saman. Svo ætla einhverjir fleira að hitta okkur eftir matinn, þeir sem tíma ekki ;o)
Svo er búið að bjóða manni í 3 partý.
Svo er auðvitað rosaleg dagskrá fyrir kvöldið og daginn.
Langar á ýmislegt skemmtilegt... en ég stefni á tónleika á höfninni og flugeldasýningu.

Samkvæmt veðurspánni verður rigning, en þá klæðir maður sig bara vel :o)

12.8.03

*Skæl*
Mig langar ekki að vera illt í bakinu :o(
Geta svona langtímavirkandi verkjalyf bara allt í einu hætt að virka?

Í dag ætla ég að vera dugleg að læra!!!

11.8.03

Æi ég er ekki í alveg nógu miklu spennu-streitu ástandi núna. Oj hvað ég nenni ekki að læra :oP


Þetta verður að öllum líkindum stundaskráin mín og einhverjir Framkvæmdafræðitímar líka :o)
...Hvað er eiginlega málið með föstudagana?!!

Jæja mér tókst að verða alveg hrikalega full á laugardagskvöldinu í kveðjupartýinu hjá Magga og Fríðu.
Og sjaldan hef ég verið jafnþunn.
Aldrei að drekka þetta saman: Bjór, Rauðvín, Koníak, Romm og eitthvað 65% skot á GrandRokk.
Einhvern veginn er þetta ekki góð blanda, þótt ótrúlegt megi virðast.

8.8.03

Ohh ég er komin með svo mikið ógeð á útsölum. Ekkert flott neinsstaðar.
Ég keypti mér samt hálsmen í skarthúsinu og það er æði!!!
Hvítt leðurband með smá blómi á, svona alveg við hálsinn.
Vá hvað það er flott :o)

Úff það eru fullt af löggum hérna fyrir utan að reyna að komast inn um einhvern glugga, eða e-ð svoleiðis.
Svo sá ég áðan að þeir tóku ca. 15 ára stelpu áðan í handjárnum.
Kannski er eitthvað dópbæli hérna í götunni. Svakalega spennandi....

7.8.03

Jæja, nú er læknirinn búinn að úrskurða í stóra bakverkjarmálinu. Ég er með brjósklos. Svo einfalt er það.
Meira að segja við annan hryggjarlið. Þetta kostar mig rúmlega 6000 kr.
Oh ég vildi sko miklu frekar eyða þessum peningum í pilsið sem ég mátaði í gær.
Jæja en svona er lífið.

Svo eitt....
Hér ætla ég að beygja fyrir ykkur orðið systir:
Hér er systir, um systur, frá systur, til systur.

Það fer svo mikið í taugarnar á mér hvað margir beygja þetta orð vitlaust.
Maður fer ekki til systir sinnar og ekki heldur frá systir sinni!!!!

Þetta var málfarsmínútan.......

6.8.03

Ohh hvað er í gangi??? Allt í einu fór bara síðan mín og nú þarf ég að gera hana alveg upp á nýtt :'(

En gaman... Það vita 5 af síðunni minni :o)
A.m.k. þora ekki fleiri að viðurkenna það.
En svo maður fari nú að tala um veðrið... það er geggjað!!! Ég er bara hérna úti á svölum með þráðlausu nettenginguna.
Er einmitt núna að downloada Brigdet Jones's Diary. Soldið skondið að þegar ég leitaði með Kazaa(eða á maður að segja közuu?) áðan að myndinni kom, ásamt myndinni, "Sylvia Saint nurse"!!! Ég man ekki eftir neinni Silvíu hjúkrunarkonu í­ myndinni ;o)
Allavega... Ég var í saumaklúbbi í gær. Það var rosalega gaman. Þá datt mér í­ hug að það væri frábær hugmynd að ná sér í­ þessa snilldarmynd. Colin Firth er náttúrulega bara æði!!! Ég get heldur ekki beðið eftir næstu. Vona að hann verði líka í­ henni. Ég er svo skotin í­ þessum flotta breska hreim :o)

5.8.03

Var að setja inn comment kerfi. Þið megið alveg prófa.
Veit ekki alveg hvort einhver veit af nýju síðunni minni.
Vitið þið af henni???

Jæja þá hefst próflesturinn...
Ég byrja svona snemma til að mega hangsa aðeins fyrst. Ég ætla samt að reyna að vera dugleg strax.
Helgin heppnaðist svakalega vel. Við vorum á tjaldstæði nálægt Grundarfirði og veðrið var frábært allan tímann. Fórum með fjölskyldunni hans Júlla og ég held að við höfum verið 19 saman og það var enginn annar á tjaldstæðinu. Þetta var eiginlega bara eins og lítið ættarmót.
Við reyndum aðeins að veiða.... fengum ekkert. En við ætlum bráðum að fara að veiða, og þá komum við ekki heim fyrr en við höfum fengið eitthvað.
Hefur einhver verið með brjósklos? Ég er að drepast í bakinu og það leiðir alla leið niður í tær. Ætla að tala við lækni, verst hvað ég er hrædd við þá :oS

1.8.03

Yndislegur dagur í dag og síðasti vinnudagurinn minn í sumar. Þvílíkur lúxus!
Ég er búin að fá mér nýjan síma :oD Sony Ericsson T68i og það fylgdi með digital myndavél. Jeje.


31.júlí 2003

Jæja ég hef ákveðið að gera eins og Dagný. Rafturinn er alveg búinn að kúka í buxurnar og ég nenni ekki að treysta á hann lengur.
Þetta er auðvitað allt í vinnslu. En hér mun bloggið mitt vera í einhvern tíma.
Vorum að koma af snilldar tónleikunum. Tríó Sigga Rögg. Algjör snilld!
Svo er bara að koma helgi og á morgun er síðasti dagurinn minn í vinnunni.
Við vorum að hugsa um að fara í fjörskylduferðadjamm á Grundarfjörð. Annars nenni ég varla að vera mjög lengi. Vorum eiginlega bara að koma úr útilegu. Fórum á ættarmót fyrir norðan og fórum svo hringinn.
Bakið mitt er nú varla að þola svona tjaldsvefn.
En þetta verður örugglega gaman og ég vona að ég geti farið á hestbak. :o)