Linkarnir hérna fyrir neðan eru til að koma litlu búðinni okkar á framfæri (dubbi.se) :)
Síðustu vikurnar eru búnar að vera kaldar hérna í Lundi. Nú erum við farin að bíða eftir vorinu.
Ég fór í próf 10. janúar sem er síðasta prófið sem ég á eftir í LTH. Vonandi kemur það vel út, en annars ætti ég að geta tekið það fljótlega aftur. Kári byrjaði á sundnámskeiði og finnst æðislega gaman. Hann er næstum orðinn syndur. Þórdís er að fara að byrja í Hiphop dansi með Silju vinkonu sinni. Svo er hún á fullu á sellóinu og í skólanum er hún í dansi líka.
Júlli hætti í skólanum fyrir jól. Hann var kominn með hundleið á náminu og ætlar að finna sér einhverja góða vinnu sem hann getur helst unnið heima. Hann hefur verið að taka að sér verkefni fyrir Maritech.
Verkefnið mitt heldur áfram. Ég er reyndar orðin þreytt á skólanum líka. En nú er orðið svo lítið eftir að það er bara að spíta í lófana og rumpa þessu af :)
Það er búið að plana sumarfrí að einhverjum hluta. Förum til Íslands 30. júní, svo til Toronto í Kanada 6. júlí, aftur til Íslands 18. júlí og svo heim til Lundar 31. júlí. Kristján og Elín ætla að bjóða okkur og Sögu, Helga, Siggu og Stínu ömmu og Helga afa.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home